154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[21:43]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Þegar við tókumst á við þetta mál fyrir tveimur árum í umhverfis- og samgöngunefnd og síðan hér í þingsal — gekk það ekki bara ágætlega (ÞSv: Jú.) á þeim tímapunkti? Ég hafði ekki tekið þátt í þessari umræðu áður og hún gekk bara vel, fannst mér. Síðan er kannski þetta sem ég kom inn á áðan sem skapar svolitla erfiðleika og það eru öll þessi ferli sem tefja mál og annað og endalausar kærur og slíkt og einstakir þættir framkvæmdaleyfa. Sá strúktúr eða skipulag varðandi þann þátt er eitthvað sem ég held að enginn hafi hugsað almennilega út í að gæti orðið með þeim hætti sem við höfum séð þau mál þróast og erum enn þá að upplifa statt og stöðugt í tengslum við orkumálin.