raforkulög.
Herra forseti. Mig langar í annarri ræðu minni að fjalla aðeins um þá þróun sem er að verða, að sumu leyti til góðs, hér heima fyrir. Það eru verkefni sem eru að mjakast áfram. Eins og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson kom inn á hér áðan er eitt og annað jákvætt að gerast, til að mynda hvað varðar línulagnir og flutning rafmagns á milli svæða, en það er þó þannig að enn vantar töluvert upp á til að við verði unað. Ég veit að hv. þingmaður hefur verið óþreytandi við að ýta á eftir því að þessi mál færist til betri vegar og vil því hvetja hann í þeirri stöðu sem hann hefur nú til að halda áfram því harki, ef svo má segja, því að það skiptir verulega miklu máli.
Fréttir bárust af því í dag að samningar hefðu verið undirritaðir milli Vesturverks og HS Orku annars vegar og Landsnets hins vegar í tengslum við undirbúning vegna Hvalárvirkjunar fyrir vestan. Það yrði algjör grundvallarbreyting fyrir svæðið ef vel tækist til í þeim efnum, bæði hvað varðar uppbyggingu Hvalárvirkjunar og sömuleiðis nýjan tengipunkt, væntanlega á Nauteyrarsvæðinu og tengda uppbyggingu á því svæði. Þó að mér þyki afskaplega illa hafa tekist til um allt of langt skeið þá verðum við líka að halda því til haga sem vel tekst til með. En af því að ég nefni Hvalárvirkjun og tengd verkefni er staðan auðvitað sú að það verkefni hefur verið býsna mikil rússíbanareið og hefur verið í nýtingarflokki rammaáætlunar síðan í öðrum rammanum. Virkjunarkosturinn þar vestur á Ströndum hefur því verið í nýtingarflokki um langa hríð. Þetta kannski dregur fram þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir þegar kemur að því að auka innlenda græna orkuframleiðslu. Verkefni eru í nýtingarflokki og hafa farið í gegnum nálarauga þess verkferils alls en þegar þeirri vegferð er lokið og verkefnið komið í nýtingarflokk rammaáætlunar þá eru öll heimsins slagsmál eftir. Það er staða sem við þurfum að leita leiða úr.
Sambærileg verkefni eru úti um allt. Við sjáum bara þrautagöngu Hvammsvirkjunar. Það er eiginlega alveg með ólíkindum þegar tímalína þess verkefnis er teiknuð upp, þá sérstaklega hökt þess verkefnis á seinni stigum þegar beina brautin átti að blasa við. Það er þetta sem orsakar þá stöðu sem við erum að bregðast við með þessu frumvarpi, þessi algjöri — ekki algjöri, það er ekki sanngjarnt að segja það, en þessi skortur á aukinni grænni orkuframleiðslu undanfarin ár orsakast af því hversu mörg ljón eru í veginum fyrir verkefni sem ættu að vera komin á beinu brautina. Þó að ég geri kannski ekki mikið af því að gleðja hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur og aðra með því að tala með jákvæðum hætti til Evrópusambandsins, þá er verið að forma regluverk þar sem er á færibandinu, ef svo má segja, sem snýr að því að forma styttri leið, hraðleið fyrir verkefni sem hafa farið í gegnum nálarauga sem sambærilegt er rammaáætlun hér heima þannig að þau komist á einhvers lags hraðferð. Ég held að til mikils væri vinnandi — hvort sem þetta er rétta skapalónið eða við aðlögum eitthvað hér heima sem kallar fram sambærileg áhrif þá held ég að við ættum að gera það.
Svo ég rifji upp það sem ég nefndi í fyrri ræðu minni um forréttindablinduna sem við erum að einhverju marki haldin hvað orkuframleiðslu varðar hér heima, þá dregur þetta alveg sérstaklega fram að við erum að því er virðist á einhverjum allt öðrum stað heldur en þær þjóðir sem við helst berum okkur saman við um mikilvægi þess að auka græna endurnýjanlega orkuframleiðslu. Þegar Evrópusambandið í öllu sínu veldi og með öllum sínum kostum og göllum fer í þá vegferð að búa til hraðleið, VIP-línu eins og einhver orðaði það, fyrir græn orkuverkefni þá veit ég að litið er öfundaraugum til Íslands hvað varðar þau tækifæri sem við höfum hér samanborið við flestar þjóðir bandalagsins. Ég vil nýta tækifærið til að kasta því inn í umræðuna að við þurfum með öllum tiltækum ráðum, og ég horfi sérstaklega á hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson af því að ég veit að honum eru þessi mál hugleikin, að forma regluverkið hér heima þannig að þau verkefni sem hefur náðst sátt um, ef við á annað borð ætlum að nota rammaáætlunarverkfærið áfram — ég er alveg til í að taka þá umræðu að henda því, það er mér ekkert sáluhjálparatriði að rammaáætlun verði hér viðhöfð til framtíðar en ég held að hugsunin á bak við hana hafi verið góð þannig að það er alveg einnar messu virði að sjá hvort ekki eru forsendur til að leyfa því verkfæri að virka eins og það átti að virka — og hafa komist í gegnum það nálarauga að komast í nýtingarflokk rammaáætlunar, komist á einhvers lags hraðferð. Þetta er ekki boðlegt. Við horfum á tímalínu verkefna sem er svo galin að það tekur ekki nokkru tali. Ég er nokkuð viss um að kontóristarnir úti í Brussel álíta okkur að einhverju marki alveg kolgalin hvað það varðar að þvælast fyrir grænni orkuframleiðslu með þeim hætti sem við gerum. Það er það sem við höfum gert lengi og gerum enn, því miður. Við sjáum bara stöðuna hvað Hvammsvirkjun varðar. Við sjáum stöðuna, sem er vonandi að færast til betri vegar núna, hvað Hvalárvirkjun varðar og svo ótal önnur verkefni. Þá er ég ekki einu sinni byrjaður að nefna jarðvarmaverkefnin.
Ég held að þetta sé það sem skipti okkur mestu máli núna af því að ég er algerlega sannfærður um að þeir sem formuðu regluverk umhverfisverndarinnar, umhverfismatsins og öll þau nálaraugu sem verkefni sem þessi þurfa að fara í gegnum höfðu það ekki í huga að niðurstaðan gæti orðið eins og hún hefur verið undanfarin allmörg kjörtímabil. Það datt engum til hugar. Þetta er ekki náttúruvernd í sjálfu sér. Þetta er einhver misnotkun á þeirri nálgun allri, að færa þau verkefni sem best eru í það tafaferli sem blasir við okkur. Ég held að það sé mikið til þess vinnandi, af því að það kemur fram í frumvarpinu að ráðuneytið, eins og það er svo undarlega orðað í nefndarálitinu, það er ábyggilega misritun en að ráðuneytið, ráðherra auðvitað, sé í þeirri vegferð að leggja fram fjölda mála á næstu árum og það sé yfirlýst stefna að það þurfi að færa þetta til betri vegar og þá verðum við að stilla miðið rétt. Það þýðir ekki að leggja fram fjölda mála sem eru þeirrar gerðar að viðhalda þessari tregðu hvað framleiðslu nýrrar grænnar orku varðar. Ég held að þegar grannt er skoðað ættu allir flokkar á þingi að geta sæst á að það hljóti að vera markmið í sjálfu sér að komast áfram með þessa hluti. Ef við ætlum að halda áfram á þeim nótum sem sumir angar umræðunnar hafa verið á hvað það varðar að loka stórum iðnfyrirtækjum eða eitthvað þess háttar, að það sé lausn mála, þá getur það aldrei orðið lausn ef við ætlum að viðhalda þeim velferðarkerfum sem við höfum byggt upp og viljum styrkja heldur verður aukin verðmætasköpun alltaf að vera í forgrunni þeirra lausna sem við formum.