raforkulög.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir skemmtilega ræðu þar sem hann kom inn á mál sem er mér mjög dýrmætt og það er tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2018/2001 um endurnýjanlega orkugjafa. Það sem hann talaði um varðandi þessi hröðunarsvæði, eða VIP-svæði eins og hann kallaði það — þetta er sem sagt uppfærð útgáfa af tilskipun 2018/2001 sem við höfum vissulega ekki enn innleitt. Hv. þingmaður kom inn á töfina sem á sér stað og líkt og hann sagði liggur vandinn ekki í rammaáætluninni. Ég held að rammaáætlunin sé bara frekar gott tól, gert til að koma til móts við almenning og pólitíkina þar sem fagaðilum og kjörnum fulltrúum er gefið tækifæri til að koma sér saman um hvaða kostir verða nýttir og hvaða kostir verða geymdir. Hins vegar er tilgangurinn með þessum uppfærðu ákvæðum tilskipunarinnar vissulega að flýta fyrir uppbyggingu endurnýjanlegra orkumannvirkja. En þetta er eitthvað sem ég sá þegar þetta var til meðferðar á Evrópuþinginu í fyrra og ég hugsaði bara: Heyrðu, þetta er ógeðslega mikil snilld. Af hverju gerum við þetta ekki? Þetta mun flýta mikið fyrir ferlinu. Og ég var bara með alls konar pælingar um af hverju við værum ekki að taka þetta upp með tilliti til raforkuvandans sem blasir hér við. Ég skoðaði hins vegar tilskipunina nánar og greinargerðina og skoðaði forsendur Evrópusambandsins fyrir þessu, en þetta er m.a. til þess að ná markmiðum þessarar tilskipunar sem er í 1. gr. um ákveðið hlutfall af vergri endurnotkun aðildarríkja Evrópusambandsins um framleidda endurnýjanlega orku þar sem 75% af losun gróðurhúsalofttegunda aðildarríkja Evrópusambandsins koma úr orkubransanum. Ég vildi bara brýna fyrir hv. þingmanni að þetta á einfaldlega ekki við á Íslandi (Forseti hringir.) af því að 75% af okkar losun eru ekki frá orkuframleiðslu og við höfum ekkert markmið eins og 1. gr. RED til að styðjast við. Ég vil því spyrja hv. þm. Bergþór Ólason, sem mér sýnist að sé á sömu braut (Forseti hringir.) og ég, hvort hann sé hlynntur því að við lögfestum þá ákvæði um orkuskipti og til hvaða aðgerða við þurfum að grípa til að ná orkuskiptunum. (Forseti hringir.) — Fyrirgefðu, forseti.
(Forseti (AIJ): Forseti sér að hv. þm. Bergþór Ólason hefur kætt marga þingmenn með vísan í Evrópusambandið. En það breytir því ekki að ræðutíminn er takmarkaður í andsvörum.)