raforkulög.
Herra forseti. Ég er hér til að gleðja áhugamenn um inngöngu í Evrópusambandið. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er mjög ánægður með þetta andsvar hv. þingmanns. Við erum auðvitað á allt öðrum stað en þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Þess vegna hefur mér þótt algjörlega fráleitt að við séum að forma regluverkið hér heima og viðbrögð við loftslagsmálum og aðlaga þau og gerast, eins og ég kallaði það, taglhnýtingar Evrópusambandsins í þeim efnum. Við erum komin svo miklu lengra en þær þjóðir sem þar um ræðir, það blasir við og þarf ekki að eyða löngu máli í það. Vegna húshitunar og annarra slíkra kosta þá erum við á allt öðrum stað, núllpunkturinn okkar er allt annar en þeirra. Mér hefur því þótt óskynsamlegt að við séum að nýta viðmið þessara þjóða til að halda áfram þessari vegferð hér heima.
Ég hef talið að allt sem snýr að orkuskiptum ættum við að nálgast út frá efnahagslegum forsendum, út frá þjóðaröryggi og þar fram eftir götunum, ekki út frá loftslagsforsendum, af því að í því samhengi erum við að standa okkur býsna vel og höfum gert það lengi. Við erum langt á undan þeim þjóðum sem við gætum borið okkur saman við þar. Ég myndi gjalda varhuga við því að lögfesta — ég hef nú stundum sagt það í gríni að það sé furðulegt að lögfesta loftslagsmarkmið, það sé á pari við að lögfesta það að Guðlaugur Þór Þórðarson orkumálaráðherra ætti að geta stokkið 2 m hástökki. Það mun ekki gagnast Gulla í hástökki. Auðvitað er hægt að vera með alls konar sýndarmennsku, eins og ég kalla það. En við eigum bara að vinna að því marki að orkuskipti hér heima eigi sér stað á grundvelli efnahags og þjóðaröryggis.
Loftslagsmálin hér á Íslandi eru í mjög góðum gír. Við erum framúrskarandi en við verðum að taka tillit til samhengisins. Við erum eyja þannig að við verðum alltaf undirorpin því að treysta (Forseti hringir.) á flutninga til og frá landinu og þar fram eftir götunum. Ég held að samhengið skipti öllu máli en að óskoðuðu máli held ég að í bili sé ekki skynsamlegt að lögfesta meira af gjafapökkunum frá Brussel í þessum efnum.