154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[22:00]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir svarið. Í fyrstu ræðunni minni hér í kvöld kom ég inn á forsendur fyrir aðgerðum til þess að framleiða meiri orku og hvenær það telst vera réttlætanlegt að framleiða meiri orku á kostnað auðlinda, einhverra lögvarinna réttinda sem náttúran er. Það er alveg ljóst að okkur hv. þingmann greinir smá á um mikilvægi umhverfisverndar og loftslagsmála. En staðan er bara sú að við erum með lögfest ákvæði um náttúruvernd og um vatnsvernd sem uppbygging og framkvæmd við orkumannvirki stangast á við. Þess vegna á sér stað þessi töf við málsmeðferð vegna virkjana.

Ég vildi hins vegar spyrja hv. þingmann um afstöðu hans til núverandi laga sem hafa verið lögfest, sem eru í formi gjafapakka frá Brussel, og kveða m.a. á um mikilvægi raforkuframleiðslu, raforkumarkaðarins og náttúruverndar. Er hv. þingmaður hlynntur því að halda þeim í gildi eða afnema þau?