154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[22:03]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var mjög svo áhugaverð og kom inn á mörg mikilvæg sjónarmið í þessu máli. Nú var mikið rætt um framtíð Landsvirkjunar í aðdraganda forsetakosninganna og ég held að allir forsetaframbjóðendurnir hafi verið spurðir hvort þeir myndu vísa því í þjóðaratkvæðagreiðslu kæmi fram löggjöf sem fjallaði um sölu Landsvirkjunar. Jafnframt held ég að allir frambjóðendur hafi gefið nokkuð skýr svör um það að þeir myndu vísa slíku máli til þjóðarinnar. En það vakti athygli mína að í kjölfar þessarar umræðu voru ýmsir þjóðfélagsrýnar sem á aðra höndina slógu það algerlega út af borðinu að ríkið myndi nokkurn tíma selja Landsvirkjun en fóru svo strax, þessir sömu þjóðfélagsrýnar, að tala um hve verðmæt ríkiseign þetta væri og það væri nú kannski kjörið að fá inn í eigendahópinn ólíka hópa og t.d. mætti selja hluta Landsvirkjunar til lífeyrissjóðanna. Nú er ég og minn flokkur algerlega andsnúinn sölu Landsvirkjunar. Það er alveg ljóst og ég tel að hv. þingmaður sé mér sammála. En ég vil spyrja: Hvers vegna hefur þetta álitaefni komið svo mikið til umræðu að undanförnu? Nú sagði sá forsetaframbjóðandi sem hvað mesta reynslu hefur á sviði orkumála að regluverkið sem væri að koma til okkar frá Evrópu gerði miklar kröfur um dreift eignarhald í fyrirtækjum í orkuframleiðslu.