154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[22:06]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að mjög margir hafi veitt athygli þessum athugasemdum forsetaframbjóðandans Höllu Hrundar Logadóttur sem er orkumálastjóri eins og við þekkjum. Það varð töluverð umræða, í tengslum við innleiðingu þriðja orkupakkans á síðasta kjörtímabili, um það hvaða kvaðir eða svigrúm regluverkið veitti aðilum sem í þann slag vildu fara að ýta á um uppbrot markaðsráðandi og afgerandi stærstu fyrirtækja. Hv. þingmaður veltir því fyrir sér hvað valdi þeirri umræðu sem við verðum vör við núna. Þann 20. maí 2014 er fyrirsögn á Vísi þar sem vitnað er í núverandi hæstv. forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson. Þar segir: Bjarni segir hugsanlegt að lífeyrissjóðir eignist hlut í Landsvirkjun. Þann 12. mars 2024 segir á vef Viðskiptaráðs: Eignarhald íslenska ríkisins á skjön við önnur vestræn ríki. Þann 12. maí 2015 er vitnað í Bjarna Benediktsson, núverandi forsætisráðherra: Kemur ekki í veg fyrir einkavæðingu. En þar var verið að tala um regluverkið eins og það væri að formast. Þann 29. mars 2024 segir í frétt frá aðalfundi Landsvirkjunar: Tækifæri til einkavæðingar Landsvirkjunar. Hér er vitnað í Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra 24. febrúar 2022: Vill að ríkið selji 30–40% hlut í Landsvirkjun. Forstjóri Kauphallarinnar segir í viðtali 4. september 2023: Mögulegt að fleyta 20% af Landsvirkjun. — Ég held að þetta sé grunnurinn að því að býsna margir hafa á tilfinningunni að verið sé að hugsa þetta í ýmsum skúmaskotum. Ég hef miklar efasemdir um að vit sé í þessu.