154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[22:08]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Í mínu seinna andsvari vil ég spyrja hv. þingmann út í eðli þessa frumvarps. Ég vildi spyrja hv. þingmann út í einn þátt þessa máls og það er það að frumvarpið sem við ræðum er í raun plástur, eins og hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir komst svo vel að orði fyrr í kvöld. Er hv. þingmaður sammála því að þetta mál sé aðeins plástur og muni ekki taka á hinu stærra vandamáli? Er hv. þingmaður sammála því að í raun þurfi að ráðast í heildarendurskoðun á raforkulögunum? Ég sé t.d. á dagskrá þingsins í dag að næsta mál á eftir þessu er einmitt annað frumvarp sem er plástur á raforkulögin þótt það fjalli kannski ekki beint um sömu vandamál og þetta tiltekna frumvarp. Er það ekki dálítið óþolandi hvað ríkisstjórnin er endalaust að plástra löggjöfina í stað þess að gera betrumbætur sem duga til hlítar?