raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er bara beinlínis búið að segja það í því frumvarpi sem hér liggur fyrir að frekari breytinga sé þörf. Það er búið að flagga því að ráðuneytið, eins og það er orðað, sjái fyrir sér að leggja fram breytingar á regluverki raforkumarkaðarins langt inn í næsta kjörtímabil. Staðan er beinlínis sú að ráðuneytið, og ég gef mér ráðherrann sem þar situr, gengst við því að þetta sé plástur, að það þurfi meira og það sé á leiðinni og það er beinlínis sagt í frumvarpinu. Ég tek undir það með hv. þingmanni að heildarendurskoðun er nauðsynleg. Ég held að margt af því sem hefur komið hingað í pökkunum frá Brussel, eins og við köllum það, sé ekki endilega til gagns og passi ekki við þann raunveruleika sem við búum við hér á Íslandi. En þetta er auðvitað þannig, eins og við þekkjum með svo margt í þeirri löggjöf sem er verið að vinna hér í þinginu undir forystu núverandi ríkisstjórnar, að þegar stjórnarflokkarnir eiga erfitt með að koma sér saman um niðurstöðu og þróun mála þá verðum við endalaust í því að plástra mál í staðinn fyrir að laga þau heildstætt.