raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ágætu ræðu, kom víða við. Mig langaði rétt að koma inn á forsöguna, eins og ég man hana, varðandi rammaáætlun 3, hvernig það skapast þetta andrúm um að fara þessa leið, hér eru aðrir í salnum sem þekkja örugglega enn þá betur og ítarlegar þá umgjörð. Þetta ferli hefst eftir Kárahnjúka og Hálslón og þær framkvæmdir sem var farið í fyrir austan. Þá er farið í þessar rammaáætlanir sem er alveg hægt að segja að hafi orðið skipbrot í, eins og kringum rammaáætlun 3. Við náðum að klára hana fyrir tveimur árum, þetta var orðið níu ára ferli frá því að hún hafði verið í umfjöllun og mikil vonbrigði. En ef þetta kerfi á að ganga þá þarf náttúrlega að ná einhverju betra, þetta umhverfi gangi betur fyrir sig, einstakar framkvæmdir, og síðan verklagið, hvernig eigi að framkvæma það sem kemur fram í rammaáætlun 3. Þar átti að vera sáttin en hún hefur kannski aldrei almennilega náðst. Eins og ég man þetta þá voru Norðmenn svolítið fyrirmyndin að rammaáætlunum, þeir höfðu verið að vinna með þær, en þeir hættu með þetta ferli fyrir einhverju síðan. Þetta er svolítið áhyggjuefni, þessi saga rammaáætlana.
Síðan er það sem snýr að Miðflokknum og umræðu um orkupakka þrjú sem rifjaðist upp. Sá sem hér stendur var ekki alltaf mjög ánægður með að það væri verið að ræða flutningskerfið í mínu kjördæmi og tala gegn uppbyggingu þess. Það er gott að heyra að hv. þingmaður, eins og ég skil hann, tali fyrir því sem hefur gerst, þ.e. að það sé haldið áfram að byggja upp flutningskerfið.