raforkulög.
Frú forseti. Það er gott að vita af stuðningnum í Norðausturkjördæmi og reyndar bara almennt við flutningskerfið. Ég held, hvaða augum sem menn líta á þessi mál , að skilningurinn hljóti að vera kominn almennt meðal hv. þingmanna um mikilvægi þess að þetta verði framkvæmt og kerfisáætlun Landsnets gangi fram á næstu árum eins og hún er sett upp. Það hefur ekki skort fjármagnið til að fara í framkvæmdirnar en það er búnar að vera ótrúlega tafir á að ganga frá málum eins og Blöndulínu 3. Hún átti að koma á undan línunum frá Eyjafirði yfir í Fljótsdalsstöð, undan Hólasandslínu 3 og Kröflulínu 3. Þetta er raunverulega það stærsta sem við getum gert. Ég get bara sagt, eins og ég hef sagt í fyrri ræðum, að það sem skiptir mestu máli er að regluverkið fari að virka. Það er það sem við erum að gera, en við eigum ekki að gefast upp á þessum ferlum. Hér eru búnar að vera endalausar tafir og endalausar kærur sem hafa stoppað framkvæmdir um árabil.