154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[22:17]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Ef við horfum bara á þetta kjörtímabil sem er núna að líða og það síðasta, þá held ég að svona ósamstæð sýn stjórnarflokkanna hafi að einhverju marki verið sjálfstætt vandamál. Það má með sanni segja eða ég leyfi mér að fullyrða það að það hafi verið gert miklu minna en hv. þingmaður hefði viljað sjá gerast á þessum undanförnum sjö árum og það held ég að sé því miður staða sem breytist ekki á meðan núverandi stjórnarflokkar vinna saman. Það eru bara ekki forsendur til að þessir ólíku flokkar nái saman um breytingar svo að raunverulegur árangur geti náðst í þessum efnum. Ég held að það sé svona sviðsmyndin sem blasir við okkur. En ég er ánægður að hv. þingmaður og við í þingflokki Miðflokksins erum sammála um mikilvægi uppbyggingar flutningsnetsins (Forseti hringir.) og við í þingflokki Miðflokksins munum hér eftir sem hingað til styðja með ráðum og dáð við það að sú uppbygging verði öflug og sem hröðust og skili þeim árangri sem nauðsynlegt er fyrir kerfið okkar í heild sinni.