154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[22:18]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, breytingar sem lúta að raforkuöryggi o.fl. Nú hefur farið fram ágætisumræða um þetta mál og svo sem ýmislegt komið fram og kannski flestallt. Þó að áherslur fólks séu ólíkar og ólík sjónarmið hafi komið fram og séu uppi í þeirri umræðu þá held ég samt að um grundvallaratriðin séum við gjarnan sammála, sem snúast auðvitað um að tryggja þarf raforkuöryggi venjulegs fólks fyrst og fremst.

Hér hafa þingmenn rammað ágætlega inn í sínum ræðum hversu óvenjulegt raforkukerfi við höfum hér á landi sem leiðir óhjákvæmilega hugann að því, t.d. þegar raforkuskortur hefur verið umtalaður á síðustu misserum, hvort ekki sé hægt að nýta þessa óvenjulegu stöðu, t.d. þá að einn framleiðandi er í viðskiptasambandi við handfylli af stærstu notendunum um þrjá fjórðu af þeirri raforku sem er framleidd á Íslandi, hvort Landsvirkjun hefði ekki einfaldlega getað talað við álframleiðendur og spurt hvort hægt væri að tímasetja viðhaldsverkefni þannig að t.d. ákveðinn fjöldi kerja yrði tekinn úr umferð mestu álagsmánuðina, eitt ker eða eitthvað slíkt. Fyrir leikmann eins og mig virkar það dálítið undarlegt að í kerfi sem er svona háð náttúrulegum sveiflum sé notkunin meira og minna öll bundin í iðnað sem er mjög stífur hvað varðar þá notkun. Maður hefði kannski haldið að viturlegt hefði verið fyrir einhverjum árum eða áratugum jafnvel að byggja upp kerfi, menningu eða aðstæður þar sem t.d. álverin reyna að draga saman þegar vatnsbúskapurinn minnkar eða eitthvað slíkt, að laga notkunina að þessum sérstöku aðstæðum sem við búum við. Það geta þau. Það vitum við, vegna þess að þau þurfa eins og annar iðnaður að sinna ýmsu viðhaldi sem getur dregið tímabundið úr raforkunotkun innan húss og annað slíkt og þar þarf ekkert endilega formlegt samtal. Maður hefði kannski haldið að þarna gæti kerfið lagað sig að því að við erum með náttúruauðlind sem er háð náttúrulegum sveiflum. Það er þessi sveiflukennda náttúruauðlind sem býr til orkuna okkar.

Það er að ýmsu að huga varðandi þetta frumvarp. Auðvitað eru megintilgangurinn og meginmarkmið góð. Ég ætla aðeins að fá að grípa niður í greinargerð með frumvarpinu, með leyfi forseta, varðandi tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar. Ég held að um þau séum við öll nokkuð sammála:

„Raforkuöryggi og tryggt framboð raforku eru grundvallarþættir í þjóðaröryggi Íslands og nauðsynleg forsenda fjölbreyttrar atvinnustarfsemi og jákvæðrar byggðaþróunar. Að lágmarka líkur á því að raforkuskortur komi upp er því hluti af almennri stefnu stjórnvalda á hverjum tíma jafnt í orkumálum, efnahagsmálum og byggðamálum. Á síðustu árum hefur nýting virkjana farið jafnt og þétt vaxandi. Eftirspurn hefur vaxið hraðar en sem nemur auknu framboði. Afleiðingin er minna svigrúm til að bregðast við áföllum í vinnslu- og flutningskerfi raforku eða óvæntri minnkun á framboði. Þetta getur skapað veikleika í kerfinu að því er varðar framleiðsluöryggi og nægjanlegt raforkuframboð. Það er ekki hagkvæmt að byggja upp raforkukerfi sem alfarið tryggir að engar líkur verði á raforkuskorti. Vega þarf og meta þessa þætti og skilgreina ásættanleg mörk orkuöryggis. Markmið þessa frumvarps er m.a. að tryggja yfirsýn yfir stöðu á raforkumarkaði út frá skilgreindum viðmiðum.“

Það er margt sem kemur til skoðunar þegar við þurfum að tryggja raforkuöryggi og við þurfum að gera það fyrst og fremst með því að forgangsraða með réttum hætti, forgangsraða rétt. Varðandi fjarvarmaveitur, sem hafa talsvert verið nefndar í þessari umræðu, þá erum við mögulega að horfa inn í framtíð þar sem skerðanleg orka hættir að vera til og allt þarf að fara í forgangsorku. Þá erum við líka að tala um að t.d. reikningurinn hjá fjarvarmaveitum á Vestfjörðum gæti tvöfaldast hið minnsta. Það er peningur eða kostnaður sem fer út í verðlagið og þá þarf samtalið að snúast um það hvernig við bætum Vestfirðingum það upp og hvernig við komum til móts við þá. Það þarf náttúrlega að fylgja þessu frumvarpi. Ég held að það sem ætti að vera kjarninn í þessu máli er að ef orkuskortur verður á Íslandi sé forgangsröðunin þannig að fyrst komi fólk sem þurfi tryggan aðgang að orku til að halda hita og ljósum á heimilum sínum. Þarna held ég að við séum öll sammála. Þetta er grunnskylda. Maður myndi halda að það væri grunnskylda þeirra sameiginlegu innviða sem raforkukerfið er að verja almenning, annars vegar fyrir skorti og hins vegar fyrir háu verði. Þetta tvennt er kannski hvor sín hliðin á sama peningnum.

Við höfum séð dæmin, t.d. þegar skerðanleg orka er uppseld og fjarvarmaveitur á Vestfjörðum neyðast til þess að brenna olíu til að halda hita á heimilum þar. Ég held að við getum öll verið sammála um hversu fráleit staða það er að á landi þar sem við búum við svo miklar endurnýjanlegar orkuauðlindir þurfi að brenna olíu til að halda hita á heimilum fólks sem eru nú a.m.k. ekki orkufrekasti þátturinn á Íslandi í dag. Við þekkjum síðan dæmi úr Vestmannaeyjum þar sem orkuverð hefur snarhækkað þannig að húshitun, það að hita heimili sitt, er allt í einu orðin að einhverjum lúxus sem fólk hefur jafnvel hreinlega ekki efni á, eitthvað sem við ættum að geta litið á sem sjálfsagðan hlut, alla vega að mínu mati. Ég held að við séum flest sammála um það.

Þegar við áttuðum okkur á því að það væri ekki til rafmagn til að Vestfirðingar og Vestmannaeyingar gætu haft næga raforku á viðráðanlegu verði til þess að geta haldið hita á heimilum sínum þá spratt þetta frumvarp upp úr því, en svo er ekkert tekið á þessu í frumvarpinu. Auðvitað er þetta eitthvað aðeins flóknara. Mögulega þarf að eiga sér stað eitthvert samtal til að gera fjarvarmaveitum kleift að kaupa forgangsorku á niðursettu verði eða styðja þær fjárhagslega til að kostnaðinum sé ekki velt út í verðlagið til fólksins á þessum svæðum. En þetta samtal hefði auðvitað átt að eiga sér stað áður en þetta frumvarp kom hingað eða í nefndarvinnunni. Og hvað segir það okkur að ekki sé búið að leysa þennan þátt málsins?

Það er einmitt þetta með stórnotendurna sem líka hefur verið mikið rætt hér, vegna þess að þar ætti að vera svo auðvelt að sækja lausnirnar. Við erum með raforkukerfi þar sem 80% af orkunni renna til stórnotenda. Eins og kom fram áðan þá hefði maður haldið að í raforkukerfi eins og því sem við höfum þar sem framleiðslan eðlilega sveiflast eftir vatnafari — við erum að nota náttúruauðlind til að framleiða endurnýjanlega orku og það er eðlilegt að náttúrulegar sveiflur hafi áhrif á það hversu mikið framboð er af orkunni — að það hefði myndast einhvers konar sveifla og möguleikar í kerfinu miklu fyrr. Manni finnst einhvern veginn að það ætti að vera auðveldara að leysa þetta en af einhverjum ástæðum þurfum við flókna löggjöf.

Annað sem þarf að benda á er það að raforka vegna flutningstaps er boðin út fjórum sinnum á ári í lokuðu útboði þar sem markaðsaðilar hafa tækifæri til að kaupa orkuna. Þetta kerfi er eitthvað sem hefur komist á að því er virðist eins og sumt sem gerist hér á landi, það bara gerist. En aðgerðirnar sem þarna er gripið til duga mögulega skammt til að tryggja raforkuöryggi almennings þar sem markaðsaðilar eru ekki endanotendur eins og t.d. heimili og smærri fyrirtæki. Einhverjir hv. þingmenn hafa notað stór orð um vangetu þessarar ríkisstjórnar og það verður að taka undir þau þegar kemur að vangetu ríkisstjórnarinnar til að tryggja raforkuöryggi almennings. Við sjáum á þessu frumvarpi að það er bara verið að boða skammtímalausnir. Þetta eru skammtímalausnir í formi markaðsinngripa sem eru fyrst og fremst, með leyfi forseta, skítamix af öðru frumvarpi sem við skulum ekki fara nánar út í.

En er skynsamlegt að við séum að ræða skammtímalausnir í stað þess að grípa til framtíðarsýnar? Ég held að þörf sé á mati á því hvers konar aðgerðir væru best til þess fallnar að tryggja raforkuöryggi almennings til lengri tíma. Við stöndum frammi fyrir því mikilvæga verkefni í dag og svo sem alltaf að tryggja raforkuöryggi Íslands. Við lifum á tímum þar sem áskoranir í orkumálum kalla á skilvirkar og skynsamlegar lausnir sem tryggja öryggi og sjálfbærni í orkuframboði. Raforkuöryggi snýst ekki bara um að halda ljósunum kveiktum. Það snýst um að viðhalda lífsgæðum, öryggi og atvinnustarfsemi og þáttum sem hafa bein áhrif á daglegt líf okkar. Óstöðugleiki í raforku getur valdið bilunum í rafmagnstækjum og truflunum og skemmt viðkvæm tæki. Ríkisstjórnin og orkufyrirtækin þurfa að vera viðbúin að sporna við þessum vandamálum og bregðast hratt og skilvirkt við þegar þau koma upp. Tryggja þarf að allir, óháð búsetu eða tekjum, hafi aðgang að áreiðanlegri raforku. Þetta er ekki bara spurning um þægindi. Þetta er spurning um grundvallarréttindi, grundvallaratriði í öryggi og velferð hvers einstaklings í samfélaginu. Það er auðvitað algerlega skelfilegt að horfa upp á það hvernig þessi skortur á rafmagni hefur haft áhrif, sér í lagi í dreifðari byggðarlögum á kaldari svæðum. Það hefur þurft að hita upp hús, skóla og sundlaugar með því að brenna dísilolíu með bæði tilheyrandi kostnaði — það er rándýrt — og tilheyrandi losun koltvísýrings í andrúmsloftið, sem er ekki síður alvarlegt.

Í ljósi þessara vaxandi áskorana er mikilvægt að fjalla um hvernig of mikil sala á raforku hefur haft áhrif á orkuframboð á Íslandi. Við höfum séð á undanförnum árum hvernig samningar um raforkusölu, sem oft eru gerðir á langtímagrundvelli við stórnotendur, hafa leitt til þess að minna svigrúm er til staðar fyrir almenna notkun. Þessi umframsala getur skapað þá hættu að á tímum mikillar eftirspurnar, t.d. á köldum vetrardögum eða þegar framleiðsla stendur ekki undir þörf, myndast skortur sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir heimili og fyrirtæki á Íslandi.

Forseti. Það er auðvitað ekki hægt að tala um raforkuöryggi öðruvísi en að minnast á flutnings- og dreifikerfi raforku á Íslandi. Þessi kerfi eru mörg hver orðin gömul og úrelt og standast ekki lengur þær kröfur sem nútímaorkunotkun gerir til þeirra. Með vaxandi áherslu á sjálfbærni og skilvirkni í notkun á orku, sem er jákvæð, er brýnt að nýta tækifærið og fjárfesta í uppfærslu og endurnýjun þessara kerfa. Þetta er mikilvægt. Þetta er ekki aðeins nauðsynlegt til að tryggja öryggi raforkuframboðs heldur til að stuðla að hagkvæmni og minnka orkutap sem fylgir úreltum kerfum. Á þetta hefur talsvert verið bent og þetta hefur mikið komið fram í umræðunni og er í rauninni alveg ótrúlegt að það skuli ekki hafa meiri áhrif en raun ber vitni. Áframhaldandi aðgerðaleysi í þessum málum getur leitt til enn frekari skerðingar á raforkuöryggi og getur dregið úr hæfni Íslands til þess að mæta framtíðarþörfum í orkumálum. Við sem þjóð verðum að vera á varðbergi. Við verðum að grípa til aðgerða sem tryggja að við getum staðið undir nafni sem framúrskarandi þjóð í sjálfbærni og nýsköpun í orkunotkun. Við höfum öll tækifærin og alla burði til að vera í fararbroddi í þessum málum. Við eigum að taka utan um þá stöðu og nota hana.

Eitt af þeim áhyggjuefnum sem hafa verið nefnd í tengslum við stefnu ríkisstjórnarinnar er þessi áhersla á að fjölga virkjunum án þess að nægilegt tillit sé tekið til umhverfisáhrifa sem fylgja. Það virðist áhersla — það virðist í sjálfu sér ekki, ég held að það sé ekkert launungarmál að það er forgangsatriði hjá þessari ríkisstjórn og virðist stundum vera það eina sem kemst fyrir að auka hagvöxt. Það virðist sem sitjandi ríkisstjórn líti á möguleikana á aukinni orkuöflun en hugsi minna um langtímaáhrif á náttúruna. Þessi stefna, sem hefur kannski verið við lýði óþarflega lengi og er hættuleg, getur leitt til óafturkræfra umhverfisspjalla þar sem raskað er viðkvæmum vistkerfum sem er ekki hægt að endurheimta. Bæði fyrir líffræðilegan fjölbreytileika og jafnvægi í náttúrunni er brýnt að nálgast alla orku með varúð. Það þarf að innleiða strangara umhverfismat áður en virkjanir koma til framkvæmda. Eins og ég nefndi hér áðan ættum við að byrja á því að bæta flutnings- og dreifikerfið og draga úr tapi á raforku sem á sér stað þar. Ég vil líka taka undir það sem hefur komið fram í máli margra hv. þingmanna, að nauðsynlegt er að vekja athygli þingmanna á því mikilvæga jafnvægi sem við þurfum að finna á milli aukins hagvaxtar og umhverfisverndar. Það er von mín að við látum þetta frumvarp vera skref í átt að því að efla raforkuöryggi okkar Íslendinga og að við tryggjum að við séum undirbúin fyrir óvæntar áskoranir á raforkumarkaðnum.

Fyrir örfáum mánuðum sáum við að hætta var á að heilt raforkuver dytti út vegna eldsumbrota, ekki vegna þess að eldsumbrotin færu yfir raforkuverið sjálft heldur dreifigetuna, línurnar. Það er ekki nóg að framleiða orku, hún þarf einhvern veginn að komast þangað sem hún er nýtt. Einstaklingar sem búa á Reykjanesi fundu einmitt fyrir því í sínu daglega lífi hvað það þýðir að missa heita vatnið til að hita húsin, þótt ekki væri nema í eina viku um miðjan kaldan vetur. Í raun var ákveðin heppni að það skyldi ekki hafa verið kaldara en raun bar vitni vegna þess að þegar hiti fer af húsum gerist ekki eingöngu það að fólki verður kalt heldur veldur það skemmdum á húsum og getur haft mjög slæmar afleiðingar, sérstaklega langvarandi. Við þurfum að vera undirbúin undir þetta, óvæntar áskoranir af þessu tagi. Þess vegna er ekki einungis nóg að mæta núverandi þörfum heldur þurfum við að tryggja sjálfbærni og öryggi fyrir framtíðarkynslóðir á Íslandi. Ég vona að þetta mál verði skref í þá átt en auðvitað er að mörgu að hyggja og það eru vankantar á þessu máli sem við höfum mörg reynt að benda á í þessari umræðu og höldum áfram að benda á. Það er mikilvægt að vanda vel til verka við setningu löggjafar af þessu tagi. Við þurfum að hugsa lengra fram í tímann og vera meðvituð um að skammtímalausnir virka bara til skamms tíma.