154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[22:39]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Mig langar að spyrja hana út í markmið ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum því að auðvitað eru þessi mál nátengd; tvær hliðar á sama peningi ef svo mætti segja. Öll spjót hafa staðið á ríkisstjórninni vegna hægagangs í baráttunni við loftslagsbreytingar og ég held að það séu ekki óþarflega þung orð að segja að þessi sundraða ríkisstjórn hafi sýnt okkur það á liðnum árum að hún getur einfaldlega ekki tekið þær ákvarðanir sem þarf að taka, sem er að birtast okkur í vaxandi losun gróðurhúsalofttegunda, í innflutningsmeti á olíu og í stöðnun í uppbyggingu á endurnýjanlegri raforkuvinnslu. Það er nú kannski af þessari ástæðu sem við stöndum hér og erum að reyna að mynda sátt og búa þannig um hnútana að heimilum og smærri fyrirtækjum sé tryggð næg raforka.

Mig langaði til að spyrja hv. þingmann út í þetta því að ég held að það blasi við að næstu ríkisstjórnar bíður það verkefni að fara að setja sér tímasettar aðgerðaáætlanir í þessum málaflokki, vinna eftir einhverri skýrri hugmyndafræði með fjármögnuðum aðgerðum af því að þannig er hægt að ná raunverulegum árangri; að það verði verkefni nýrrar ríkisstjórnar að taka til í málaflokki orkuskipta, að skerpa á óljósum markmiðum í orkuskiptum og tryggja að við verðum með tímasetta orkuskiptaáætlun. Ég hefði áhuga á að heyra sjónarmið þingmannsins um þessa tvo þætti, orkuskipti og stöðuna og kannski aðgerðaleysið í loftslagsmálum.