raforkulög.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Fyrst við erum farin að ræða pólitík ætla ég bara að fara lóðbeint í einlægnina. Ég átta mig ekki á því hvernig þeir aðilar sem mynduðu þessa ríkisstjórn sáu fyrir sér að þetta yrði nokkurn tímann mögulegt. Ég held að ríkisstjórnin, eins og við höfum náttúrlega séð, hafi verið ófær um að kljást við þetta eins og margt annað. Eins og kom fram, áður en ríkisstjórnin var mynduð, í kosningabaráttu þessara flokka eru þeir algerlega á öndverðum meiði. Það sem við sáum gerast strax þegar þessi ríkisstjórn var mynduð er að orku- og loftslagsmálum var hrúgað saman, ekki með það að markmiði að tryggja að loftslagsmál væru ríkjandi þegar kemur að orkumálum — nú er ég ekkert að reyna að vera ómálefnaleg, þetta bara blasir nákvæmlega svona við mér — heldur sé sá flokkur í ríkisstjórninni sem ég held að trúi hreinlega ekkert á þátt okkar í loftslagsbreytingum að notfæra sér baráttuna í loftslagsmálum til að koma áætlunum sínum um frekari virkjanir áfram án nægilegs tillits til umhverfisáhrifa af því. Þetta eru áhyggjurnar sem ég hef. Ég hef enga trú á því að þessi ríkisstjórn sé fær um að leiða þetta til lykta með einhverjum framtíðaráformum sem bæði tryggja raforkuöryggi og passa upp á umhverfis- og loftslagssjónarmið. Og ég hef bara verulegar áhyggjur af því.