raforkulög.
Forseti. Ég er einlæglega sammála hv. þingmanni um áhyggjurnar. Ég sit í umhverfis- og samgöngunefnd og þar höfum við séð sjónarmið loftslagsráðs. Mér hefur fundist þungamiðjan í gagnrýninni varðandi loftslagsaðgerðirnar vera sú að það vanti upp á að þær séu tímasettar, að það vanti að aðgerðirnar séu mælanlegar og að þær séu fjármagnaðar. En ég hjó eftir því að hv. þingmaður nánast afsakaði það að ætla að fara að ræða pólitík. Það finnst mér kannski ramma það inn að staðan er orðin svo alvarleg að við veigrum okkur við að ræða ástæðurnar fyrir því að við erum í þessari stöðu. Ástæðan er pólitík að stórum hluta, þetta pólitíska val þriggja flokka að fara í samstarf þar sem vitað er að þeir ná ekki saman. Fyrir þetta geldur fólk í dag, almenningur, ekki síst á svæðum eins og á Vestfjörðum, og upp er að teiknast stórkostlega alvarleg mynd. Ég held að við þurfum bara að segja það fullum fetum að það er afleiðing af pólitík að hér erum við stödd.