raforkulög.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að gera tilraun til að hrista úr mér meðvirknina. Ég held að það sé rétt mat hjá hv. þingmanni að þegar brotin eru orðin þeim mun alvarlegri, þeim mun erfiðara finnist manni að orða þau. Það er kannski það sem er að gerast, ég er sammála því. Ég held að ástæðan fyrir því að loftslagsráð kemur með þessar ábendingar, um að það vanti tímasett, mælanleg markmið og fjármögnun, sé einfaldlega sú — nú kikkar meðvirknin aftur inn hjá mér hérna — að það sé hreinlega ekki raunverulegur vilji fyrir hendi. Ég hefði haldið, eins og ég var að reyna að segja í fyrra svari mínu, að það hafi alltaf verið augljóst. Þegar sú hugmynd kom upp að mynda ríkisstjórn þessara flokka og að stilla hlutunum upp eins og var gert hefði sú staða sem komin er upp ekki átt að koma nokkrum manni á óvart. Þetta er auðvitað einn af þeim þáttum þar sem maður hreinlega skilur ekki hvernig í ósköpunum, ég ætla bara að segja það, Vinstrihreyfingin – grænt framboð sá fyrir sér að þetta gæti gengið.