154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[22:48]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, ég held að hv. þingmaður hafi hitt naglann á höfuðið með mjög margt og ekki síst það að til þess að tryggja raforkuöryggi þarf að tryggja dreifiveiturnar, dreifikerfið. Það er kannski svolítið það sem hefur verið látið sitja á hakanum að einhverju leyti eða ekki verið nægilega skýr heildar- og framtíðarsýn hingað til sem tryggir getu okkar til að bregðast við áföllum. Ég held að það hafi bara sýnt sig. Það er auðvitað að einhverju leyti vegna, eins og við ræddum hérna áðan, vangetu þessarar ríkisstjórnar til að taka ákvarðanir vegna, ég ætla að segja hreinlega innbyrðis forsendubrests. Fyrirvarinn sem ég myndi setja við það að vera sammála hv. þingmanni að öllu leyti er að auðvitað snýst þetta svo mikið um forgangsröðun. Við erum með næga orku, það þarf að tryggja varaorkuna. Það getur verið að það sé flókið og flóknara en við gerum okkur grein fyrir. En það snýst auðvitað um dreifingu, snýst sannarlega um að koma orkunni frá þeim stöðum þar sem hún er, hún er auðvitað mismikil um okkar ágætu eyju, frá því þar sem hún er sótt og þangað sem hún þarf að vera. Það er kannski akkúrat á afskiptum svæðum sem getur komið upp vandi. Og jú, við þurfum meira varaafl og við eigum að vera að mínu mati á þessum tíma í tækniþróuninni og með okkar getu, með nýsköpun og annað, með tæki til að gera það; tryggja varaorku, varaafl, viðbragðsgetu okkar við áföllum án þess að klúðra umhverfinu um leið.