raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er eitt sem mig langar að spyrja hv. þingmann að til viðbótar. Nú hefur mikið verið rætt um framþróun í virkjunarkostum. Ein leið sem ekki hefur enn þá komið til framkvæmda hér á landi en lofar góðu á hugmyndastigi er að reisa vatnsaflsvirkjanir. Nú eru straumar sterkir víða um Íslandsstrendur og ég veit að margir, t.d. í Vestmannaeyjum, hafa mikinn áhuga á því að vita hvort hægt sé að beisla vatnsafl hafstrauma til að framleiða raforku. Telur hv. þingmaður að þetta sé tækni sem við Íslendingar ætlum að taka þátt í að þróa og gera tilraunir með? Getur verið að hér megi finna lausnir á mörgum þeim vandamálum sem við höfum rætt hér í kvöld? Ég veit að vísu að hafið er harður húsbóndi og það er eflaust erfitt verkefni að hanna og smíða vatnsaflsvirkjun sem skilar miklum afköstum án þess að krefjast mikils viðhalds og jafnframt stendur af sér þau aftakaveður sem slík virkjun þarf að þola.