raforkulög.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ekki síst fyrir framtíðarsýnina. Ég held að eins og staðan er í dag þá séu þær hugmyndir sem hv. þingmaður nefnir enn þá dálítið langt utan seilingar hvað varðar t.d. þá tækni sem við höfum yfir að ráða en jú, vissulega er þetta allt eitthvað sem mér finnst sannarlega að við eigum að halda áfram að stefna á og rannsaka. Ég óttast hins vegar að það sé kannski talsvert mikil langtíma- og framtíðarmúsík sem hv. þingmaður er að tala um en mér finnst það persónulega alltaf uppörvandi og gefur mér innblástur þegar fólk talar á þessum nótum þannig að ég fagna því bara. Ég held að þetta sé kannski ekki alveg raunhæfur möguleiki akkúrat eins og staðan er. Kannski erum við farin að nálgast eitthvað eins og vindmyllur úti á hafi eða eitthvað slíkt en virkjun sjávarstrauma held ég að sé aðeins lengra inni í framtíðinni.