raforkulög.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur fyrir ræðu hennar í þessum umræðum um raforkulögin. Það var margt áhugavert í ræðunni sem væri gott að staldra við og ég ætla að staldra við einn svolítið stóran punkt. Við seljum mikið til stórnotenda, ekki síst álveranna, og nú er það þannig að raforkukerfið eins og við þekkjum það í dag hefði auðvitað aldrei byggst upp með jafn öflugum hætti ef ekki hefði komið til þess að orka hefði verið seld með þessum hætti til þessara stórnotenda. Hlutföllin eru vissulega há, þetta eru meira en 80%, ef ég man rétt, sem fara í þá átt, og við erum að tryggja það með þessari löggjöf hér að það verði hægt að tryggja ef þannig aðstæður koma upp að það sé alltaf til fyrir heimili, smærri fyrirtæki og mikilvæga innviði og þar fram eftir götunum. Svo hafa menn stundum verið að deila um það hér hvort það sé orkuskortur í landinu eða ekki. Næg orka til, segir hv. þingmaður og það má auðvitað til sanns vegar færa að hér er mjög mikið virkjað, það er miklu meira virkjað hér á mann heldur en víðast hvar annars staðar. En því er stundum fleygt fram í umræðunni að það sé auðvelt að bregðast við þessu og að einfaldasta leiðin væri kannski sú að endurnýja bara ekki raforkusamninga við einhverja af stórnotendunum, gefa það út strax að slíkir samningar yrðu ekki endurnýjaðir og þannig væri hægt að losa um mjög mikla orku. Ég tel sjálfur að það sé svolítið varasöm leið en mig langar að spyrja hv. þingmann hvað þingmanninum finnst um þetta sem stundum hefur verið kastað fram í umræðunni, að þetta sé einföld leið til að losa um næga orku. Auðvitað hafa menn nefnt ýmsa aðra hluti eins og eflingu flutningskerfisins og betri nýtingu virkjana og annað í þeim dúr. En mig langaði að spyrja hv. þingmann um þetta: Kæmi til greina að gefa bara út þá yfirlýsingu að það ætti að loka einu álveri og nota orkuna í annað?