raforkulög.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég ætlaði í síðara andsvari að koma inn á hlut sem mér finnst svolítið áhugavert að ræða í sambandi við þetta mál og reyndar fleiri. Nú hafa stjórnarþingmenn tekið þátt í þessari umræðu eins og vera ber og það er alltaf svolítið skondið þegar þingmenn frá sérstaklega Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, sem hafa stýrt landinu hérna nánast frá lýðveldisstofnun, koma upp í hverjum málaflokknum á fætur öðrum og tala um stjórnleysi eða erfitt ástand og að nú þurfi að bregðast við, og tala um fyrirhyggjuleysi og skammtímasýn og þar fram eftir götunum. Mig langar að spyrja hvort hv. þingmaður sé ekki hreinlega sammála mér í því að þegar þingmenn þessara tveggja flokka tala með þessum hætti þá séu þeir í raun og veru að gagnrýna störf eigin flokka ár og áratugi aftur í tímann. Menn koma stundum hérna upp nánast eins og þau séu í nýjum flokki með nýja stefnu og hafi ekkert með fortíðina að gera. Mig langaði að fá smá hugleiðingar frá hv. þingmanni um þetta.