154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[22:59]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Jú, ég held að við hv. þingmaður séum þarna alveg hjartanlega sammála og ég held að við séum sammála um að þetta eigi við í mörgum málaflokkum öðrum en þeim sem við erum að ræða hér. Það er einmitt eiginlega hálfhjákátlegt stundum að horfa á og hlusta á þingmenn meiri hlutans hér á þingi, sem hafa myndað þessa ríkisstjórn núna um árabil og síðan akkúrat flokka sem hafa gert það enn lengra aftur, vera að gagnrýna stöðuna í málaflokkum sem þau hafa stjórnað um árabil, ef ekki í áratugi. Ég velti því stundum fyrir mér hvort þau heyri í sjálfum sér, bara í alvörunni velti ég því fyrir mér. En svo kemur líka stundum fyrir, sem er enn furðulegra að hlusta á, að þingmenn meiri hlutans koma hér upp og tala eins og þeir séu í stjórnarandstöðu eða jafnvel fara í blaðaviðtöl og gagnrýna ástandið eins og þau hafi ekkert um það að segja. Það er auðvitað mjög undarlegt. Ég er sammála því.