raforkulög.
Frú forseti. Loksins, loksins fæ ég að tala í þessu máli en mig langaði að segja nokkur orð hér kl. 11 að kvöldi um þetta frumvarp sem ég lít svo á að mætti kannski lýsa með þeim einkunnarorðum að þetta frumvarp stígi skref. Það stígur skref sem er í samræmi við tillögur starfshópa sem hafa verið að fjalla um orkuöryggi á heildsölumarkaði fyrir raforku og mér sýnist að sú leið sem var farin í frumvarpinu, sem virðist nú vera nokkuð breið sátt um, sé skynsamleg við þær aðstæður sem núna blasa við. Markmiðið er að styrkja raforkuöryggi almennings og það er gert hér með því að styrkja stoðir undir skömmtun á raforku þegar hennar er þörf og að marka síðan þessari skömmtun ákveðinn ramma eða að setja ákveðnar leikreglur um þessa skömmtun. Þetta eru aðgerðir sem koma því miður til af þörf.
Við erum í þessu máli að tala um hagsmuni sem varða algjöra grunnþörf fólks, algjör grundvallaratriði, bæði fyrir heimilin og fólkið í landinu en um leið til þess að atvinnustarfsemi fái þrifist. Og eins og við höfum rætt og heyrt í kvöld er hérna um augljóst þjóðaröryggismál að ræða sem reyndar er rakið í greinargerð málsins. Mér finnst að við sjáum það mjög skýrt í þessu máli að hér er enn eitt dæmið og mjög alvarlegt dæmi þess hverjar afleiðingarnar eru þegar flokkar eru mjög markvissir í því að starfa með öðrum flokkum, vitandi það að líkurnar á því að þeir nái saman eru ekki miklar.
Þetta er mál sem hægt er að styðja en ég myndi vilja bæta við um þann stuðning að það verður að brýna ríkisstjórnina til dáða, jafnvel þó að hún eigi bara árið eftir og mögulega, og jafnvel líklega, skemmri tíma en það. Það verður að fara í hraða vinnu við allsherjarendurskoðun raforkulaga til að koma í veg fyrir svona bútasaum eins og við erum að horfa á hér. Í því sambandi rifjaðist upp fyrir mér, af því að við erum ekki að tala um einhvern nýjan vanda, að frammistaða ríkisstjórnarinnar í orkumálum var rakin á haustfundi Landsvirkjunar haustið 2023. Þá var staðan sú að þröng staða blasti við heimilum næstu árin og þau virtust vera allt að því afgangsstærð í baráttunni um raforku. Þá blasti við sú staða, sem er enn fyrir hendi, að leyfisveitingaferli nýrra virkjana var komið út í skurð og þá blasti við, og það er enn þá staðan, að háleit markmið Íslands í orkuskiptum væru nánast að engu orðin, þannig að eðlilega standa spjótin á ríkisstjórninni þegar hægagangurinn hefur verið þessi. Ég var í andsvörum við hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur hér rétt í þessu þar sem við ræddum birtingarmyndir þessa hægagangs, t.d. í samhengi við aðgerðir eða skort á þeim varðandi loftslagsbreytingar. Ég trúi því raunverulega að nýrrar ríkisstjórnar bíði það verkefni að taka ákvarðanir og gera það t.d. að forgangsmáli að hraða leyfisveitingum og passa upp á að það sé næg orka fyrir hendi í nýtingarflokki til að knýja orkuskipti og mæta orkueftirspurn framtíðarinnar. Það ætti auðvitað að vera markmiðið að það taki mun minni tíma fyrir þá virkjunarkosti sem eru komnir í nýtingarflokk að fá þau leyfi sem þarf til að geta byrjað framkvæmdir.
Svo eru það þessi óljósu markmið í orkuskiptunum, að okkur vantar tímasetta áætlun þar um. Ég vil líka segja að ég er þeirrar skoðunar að kyrrstaðan í orkuskiptum verður ekki bara rofin með því að ætla að fara í það að afla meiri raforku. Við þurfum sannarlega að gera það. Við þurfum að afla meiri raforku en það þarf líka að horfa á flutningskerfið. Það þarf að vera traust um allt land og notendur eiga að sjá hag í því að skipta um orkugjafa. Þar er ég mjög hrifin af hvötum í þá áttina.
Frú forseti. Um frumvarpið nánar þá sjáum við að í 9. gr. frumvarpsins kemur fram og er rakið að þegar sú staða er uppi að ófyrirséð, óviðráðanleg atvik valda því að framboð raforku fullnægir ekki eftirspurn þá beri flutningsfyrirtæki að grípa til skömmtunar til dreifiveitna og notenda. Í ákvæðinu segir að við skömmtun eigi að gæta jafnræðis og að skömmtunin verði að byggjast á málefnalegum sjónarmiðum. Þetta með jafnræðið og hin málefnalegu sjónarmið á síðan að útfæra í reglugerð. Ég ræddi þetta aðeins fyrr í kvöld í andsvörum við hv. þingmann Jóhann Pál Jóhannsson, að mér finnst sérstakt að svona veigamiklir þættir séu skildir eftir og eigi að útfærast í reglugerð. Það er auðvitað skiljanlegt að útfærsla á reglum fari þangað en breiðu línurnar og breiðu strokurnar eiga heima í lögunum sjálfum.
Frú forseti. Hérna eru sem sagt lagðar til breytingar á raforkulögum sem miða að því að styrkja raforkuöryggi almennings og forgangsröðun í samræmi við svokallaða langtímaorkustefnu til ársins 2050. Breytingarnar snúa að því, eins og ég nefndi hérna áður, að tryggja almenningi og tryggja smærri fyrirtækjum forgang þegar kemur til þess að það þarf að skammta vegna óviðráðanlegra orsaka og þegar önnur úrræði eru ekki fyrir hendi. Í frumvarpinu er líka mælt fyrir um og talað um söfnun og miðlun upplýsinga um raforkuöryggi á markaði, þ.e. heildsölu- og smásölumarkaði. Í frumvarpinu er talað um viðmið fyrir raforkuöryggi og öflun og miðlun upplýsinga um stöðuna á heildsölumarkaði raforku.
Frú forseti. Mig langar að nefna sérstaklega nokkur atriði sem reifuð eru í nefndaráliti meiri hlutans þar sem fram kemur að atvinnuveganefnd hafi verið upplýst um það að á vegum ráðuneytisins sé unnið að því að endurskoða allt regluverk raforkumarkaðarins og þannig eigi að stuðla að auknu orkuöryggi þjóðarinnar allrar. Þar segir líka að ráðuneytið stefni að því að leggja fram fleiri frumvörp á komandi þingum. Meiri hlutinn hvetur til þess að vinnu ráðuneytisins sé hraðað. Það er auðvitað dálítið áhugavert, af því að þessi ríkisstjórn hefur setið núna í sjö ár, að núna er verið að biðja um hröð handtök.
Ég tek undir athugasemdir hv. þm. Bergþórs Ólasonar sem nefndi að það er auðvitað sérstakt líka að sjá hér í textanum orðalag um að ráðuneytið stefni að því að leggja fram frumvörp, sem speglar kannski líka ákveðin viðhorf ríkisstjórnarinnar til Alþingis. Það er auðvitað ráðherra sem situr á Alþingi sem leggur fram frumvörpin, en þegar fram kemur í nefndarálitinu að það sé stefnt að því núna á næstunni að leggja fram fleiri frumvörp er um leið verið að staðfesta að hér er verið að stíga ákveðið lítið skref, þýðingarmikið skref, en við erum að horfa upp á svona plástursaðgerð, að það þurfi að fara í það núna að plástra með þessum hætti, það er ekki tími til að fara í heildarendurskoðunina. Svona getur auðvitað komið upp á en það er ekki þannig að hægt sé að afsaka það eftir sjö ár saman í ríkisstjórn að setja fram plástur með þessum hætti. Það gerir það líka í lagalegum skilningi aðeins flóknara að vinna regluverk þegar við erum endalaust að plástra en aldrei í heildarpólitískri stefnumótun eða sýn.
Þannig að ég tek undir hvatningu meiri hlutans í nefndarálitinu um að það fari mjög vel á því að ríkisstjórnin eða ráðherra fari nú í það að smíða þau frumvörp sem þarf að smíða og fari í þessa heildarendurskoðun en þar eru nokkur atriði sem þarf að skoða sérstaklega. Þar vil ég ekki síst vísa í sjónarmið sem hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson rakti í ræðu sinni um þetta mál hér fyrr þar sem hún talaði um að það þurfi að tryggja að inngrip stjórnvalda hér gangi ekki lengra en nauðsynlegt er. Það er einn punktur. Annað er að það þarf að tryggja að fyrirkomulagið sem hér er verið að setja upp raski ekki eðlilegri og heilbrigðri samkeppni. Þá er að tryggja að reglur og sjónarmið um jafnræði séu leiðarstef og leiðarljós. Síðan þarf auðvitað að horfa til þess alltaf að lágmarka kostnað sem óhjákvæmilega fylgir því að tryggja orkuöryggi og síðast en ekki síst að við förum vel með auðlindir okkar, að orkuauðlindum sé ekki sóað að þarflausu. Ég tek undir sjónarmið Hönnu Katrínar Friðriksson um að tryggja þurfi hlut heimila og smærri fyrirtækja í beinni samkeppni við stórfyrirtæki um raforku og um leið að huga þurfi að verðlagningu til heimilanna og smærri fyrirtækja um landið allt. Þetta er þáttur sem þarfnast pólitískrar umræðu.
Forseti. Við vinnu meiri hlutans, og þetta er rakið í nefndaráliti, kom í ljós hve ógagnsær íslenskur raforkumarkaður er. Skortur á upplýsingum og misvísandi upplýsingar geta auðvitað leitt til þess að það eru teknar ákvarðanir á hæpnum forsendum, rangar ákvarðanir þegar og ef kemur að því að skammta þurfi raforku. Þetta er auðvitað sjálfstætt vandamál sem meiri hlutinn rammar ágætlega inn. Það er vandamál að markaðurinn sé ógagnsær og í umræðu um markaðsviðskipti þarf að gæta að því að framleiðsla raforku og viðskipti með orkuna er atriði sem er náskylt allri umræðu um nýtingu þjóðarauðlinda, að við viljum umgangast auðlindirnar okkar á sjálfbæran hátt. Við viljum tryggja að arður af þeim, arður af nýtingunni, renni til þjóðarinnar og við eigum auðvitað — ég vil meina það, það er sár á íslenskri þjóðarsál vegna þess að þetta hefur ekki heppnast vel með sjávarauðlindina og við þurfum alltaf að vera meðvituð um þetta í allri umræðu um okkar auðlindir, að við séum ekki að endurtaka þau mistök þar.
Meiri hlutinn nefnir í sínu áliti að aukinni eftirspurn eftir raforku vegna atvinnuuppbyggingar og ekki síður vegna orkuskipta verði ekki bara mætt með því að auka orkuframleiðslu. Ég tek heils hugar undir þau orð, eins og ég kom inn á í byrjun, að það þurfi líka að fara í það að styrkja flutningskerfi raforku verulega og auka þar með sveigjanleika kerfisins og öryggi. Og auðvitað verðum við líka að leggja mikla áherslu á orkunýtni.
Það var aðeins umræða hér í kvöld um breytingartillögur meiri hlutans, sem ég heyrði að kallað hefur verið eftir að nefndin fjalli um betur í ljósi nýrrar umsagnar ASÍ. En það er breyting á orðalagi þess efnis að í stað orðsins vinnslufyrirtæki komi orðið markaðsaðili. Hér er, sýnist mér við fyrstu yfirferð, verið aðeins að opna á notkun stórnotenda á jöfnunarorkumarkaði. Manni sýnist það nú vera aðeins á skjön við það sem nefnt hefur verið í almennri umfjöllun um málið. Ég vonast til þess að þetta verði skýrt. Þó að í flestum samningum sé það nú þannig að — í samningum Landsvirkjunar við stórnotendur er kveðið á um að þeim sé ekki heimilt að selja orku frá sér aftur inn á kerfið og slíkir samningar standa auðvitað.
Kannski bara rétt í lokin þá eru aðrar breytingar hér þar sem er verið að draga ákveðna línu á almennum markaði á milli þeirra smærri fyrirtækja sem fá forgang og þeirra sem fá ekki forgang. Ég vil því í lokin segja að hér er mál sem ég mun styðja en vil enda á því sem ég hóf mál mitt á, að það þarf líka að hvetja stjórnvöld til að hraða vinnu við allsherjarendurskoðun raforkulaga þannig að við séum að hætta í bútasaumi eins og þessum. Það einfaldar ekki löggjöfina, það skýrir ekki löggjöfina og það hjálpar heldur ekki til við pólitíska stefnumótun. Hérna er um algjört grundvallarmál að ræða og það er sérstakt að þessi staða sem við okkur blasir sé komin upp. Orka er auðvitað forsenda lífskjara. Orka er forsenda hagvaxtar. Hér er um grundvallarréttindi fólks að ræða. Hér er um algjöran grunn atvinnustarfsemi að ræða. Við erum að tala um öryggismál og velferðarmál, þjóðaröryggismál, og ég vonast til þess að nefndin skoði málið aftur í ljósi nýrrar umsagnar ASÍ og skerpi á því orðalagi ef þess þarf til þess að það sé algjörlega ljóst að frumvarpið spegli þær áherslur og þann takt sem ætlast var til og nái fram þeim markmiðum sínum að skammta með þeim hætti sem ætlast var til.