raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég vil spyrja hv. þingmann út í það hvort sú markaðsvæðing sem hefur átt sér stað í raforkukerfinu og sú milliliðavæðing sem fylgir henni sé samfélagslega virkilega til hagsbóta. Ég veit ekki hvaða virði þeir skapa sem setja upp einhvers konar sölufyrirtæki sem gerir það eitt að fá leyfi frá þar til greindum aðilum til að kaupa raforku og selja hana svo hærra verði til neytenda. Er þessi starfsemi að skapa einhver verðmæti í okkar samfélagi eða að auka einhverja hagkvæmni? Ég get ekki séð að það sé eitthvað betra fyrir okkur í okkar samfélagi að hér starfi fullt af fólki í einhvers konar milliliðahlutverki sem ekki var þörf fyrir, að maka krókinn á kostnað almennings. Nú er þetta líka þannig að þegar þú kaupir hús þá eru það ekki rafmagnslaus lyklaskipti heldur virka ljós og ofnar líka. Það er hins vegar þannig að þá á maður víst að tilkynna dreifiveitunni af hvaða söluaðila maður vill kaupa og þá fær maður reikning frá þeim. Allt voðalega spes. Og svo kom jú upp smá hneykslismál fyrir nokkrum misserum þar sem fyrirtæki voru að misnota kerfið og reyna að framkalla gjaldskrá sem sýndi svo lágt verð að þegar fólk tilkynnti ekki um val á söluaðila þá bar dreifiveitunni að velja þann söluaðila sem bauð upp á lægsta verðið. En eftir að það val fór fram þá snarhækkaði allt í einu verðið hjá þeim sem höfðu gleymt að velja söluaðila vegna alls konar aukagjalda. Er þetta eintómt brask eða hvað?