raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég held að í þessum málaflokki eins og svo mörgum öðrum gildi hið gullna jafnvægi. Í orkumálunum finnst mér við alltaf vera að horfa á jafnvægið á milli verndar og nýtingar en mér finnst staðan eins og hún blasir við okkur í dag vera sú að það vantar orku. Það er algerlega skýrt í mínum huga. En síðan eiga stjórnmálin auðvitað að hafa skoðun á því hvernig við ráðstöfum henni. Mér finnst þetta alltaf vera spurningin um það. Ég er ekki í hópi þeirra eða tek undir með þeim sem segja að það sé einhver lausn á þeirri stöðu sem uppi er í dag að við lokum álveri eða neitt í þá veruna. Orka er einfaldlega grundvöllur framfara og hagvaxtar hér í landi. En ég heyri að þingmaðurinn er með hugann við, ég man ekki hvernig hann orðaði það, braskara. Ég held að hlutverk stjórnvalda sé alltaf að setja heilbrigðar og almennar og skynsamlegar reglur til að tryggja það að vel sé farið með auðlindir og í þágu almannahagsmuna.