154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:21]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Í mínu seinna andsvari vil ég spyrja hv. þingmann um umsögn Alþýðusambands Íslands sem barst um þetta mál í dag. Það er dálítið frábrugðið að umsögn berist svona seint, ekki satt? Er þessi umsögn hugsanlega viðbragð ASÍ við breytingartillögu meiri hlutans. Er breytingartillaga meiri hlutans hugsanlega að umbreyta þessu máli þannig að afleiðingar þess verði allt aðrar en til stóð samkvæmt upphaflegu frumvarpi? Við þekkjum jú annað dæmi um slíkt frá því í vor, þ.e. breytingarnar sem voru gerðar á búvörulögunum. Deilir hv. þingmaður þeim áhyggjum sem ASÍ viðrar í sinni umsögn um hugsanlegar afleiðingar breytingartillögu meiri hlutans? Ég bara spyr.