154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:22]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Tómasi A. Tómassyni kærlega fyrir andsvarið og fyrir þessa spurningu. Ég hjó einmitt eftir því í ræðu hv. þm. Jóhanns Páls Jóhannssonar fyrr í kvöld að hann nefndi þessa umsögn. Nú sit ég sjálf ekki í atvinnuveganefnd sem hefur haft þetta mál til meðferðar og umfjöllunar þannig að ég hafði ekki heyrt af þessari umsögn fyrr en bara hér í kvöld á meðan við vorum að ræða þetta mál. Ég las hana og tek heils hugar undir þau sjónarmið sem hafa heyrst hérna í kvöld; mér finnst hún gefa fullt tilefni til að nefndin ræði málið aftur og skoði hvort það sé ástæða til að taka undir þá gagnrýni sem þarna birtist eða ekki. Mér finnst ég ekki geta svarað því með afgerandi hætti eftir að hafa setið hérna í kvöld og hlustað á ræður og lesið mjög snögglega yfir umsögnina hvort þetta breyti málinu í grundvallaratriðum eða ekki. Mér finnst hins vegar alltaf hættulegt að ætla að afgreiða lög með þessum hætti og að það eigi alltaf að leyfa lögunum að njóta vafans. Vinnubrögðin eiga að vera þau að við tökum málið aftur til skoðunar og rýnum það þannig að það sé algjörlega gulltryggt að frumvarpið nái fram sínum markmiðum sem eru þau að þjóna fólkinu í landinu. (TAT: Heyr, heyr.)