raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Ég veitti því sérstaklega eftirtekt þegar hv. þingmaður var að tala um grundvallarréttindi fólks til aðgangs að raforku vegna þess að það er nú mergurinn málsins og um það á þetta frumvarp að snúast, að tryggja aðgengi fólks að öruggri raforku. Við höfum séð það í þeim hræðilega stríðsrekstri sem nú á sér stað í Evrópu og raunar líka í dag enn hræðilegri, ef svo mætti að orði komast, í Palestínu, að ráðist hefur verið á þessa borgaralegu innviði, rafmagn tekið af fólki og verið skrifaðar langar greinar um að þar með sé í raun um mögulega stríðsglæpi að ræða vegna þess að þarna er verið að taka frá fólki getuna til að draga fram lífið í heimi dagsins í dag. Um þetta ætti þessi mikilvæga umræða auðvitað fyrst og fremst að snúast og það er hér sem meiri hlutinn, að ég tel, bregst hvað mest vegna þess að hér er ekki verið að tala um það hvernig við ætlum að tryggja aðgang almennings að öruggu og áreiðanlegu rafmagni á viðráðanlegu verði. Þetta er eitthvað sem Evrópusambandið skyldaði okkur til að setja í lög, setja ramma utan um fyrir fjarska löngu síðan og við höfum ekki enn þá sett í lög og ekki enn þá sett ramma utan um. En hér stöndum við og erum að setja lög um hvernig við getum skert raforku til notenda og heimila.
Erum við ekki að byrja hérna á vitlausum enda, hv. þingmaður? Ættum við ekki að byrja á því að skilgreina hvað telst vera viðráðanlegt verð fyrir raforku og vernda heimilin með þeim hætti að þau hafi aðgang að öruggri raforku? Þetta eru jú einungis 5% af raforkumarkaði á Íslandi. Það getur varla nokkru sinni verið sá skortur hér að það þurfi að skerða heimilin í landinu.