raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirspurnina. Auðvitað er það alger kjarni máls hér í þessari umræðu hvernig við tryggjum hagsmuni fólksins í landinu. Það kom líka fram í framsögu hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar að t.d. eins og í stríðsrekstri í kjölfar árásar Rússa inn í Úkraínu verður allt í einu svo skýrt hvað þjóðaröryggi þýðir og hvaða hagsmunir eru undir og hvað það er mikið undir þegar við erum að horfa á alvarlegt högg á innviðina sem getur í reynd ógnað lífi og velferð fólks með sama hætti og beinn stríðsrekstur sjálfur. Ég er á því að það þurfi að auka orkuöflun og ég held að til þess að ná loftslagsmarkmiðum okkar þurfi að fara í græna orkuöflun. En af því að þingmaðurinn spurði hvort ríkisstjórnin væri ekki hér að byrja á öfugum enda þá segi ég hiklaust jú. Ég myndi segja að það væri ákveðið svona „brand“ þessarar ríkisstjórnar. Ef hún á annað borð byrjar þá byrjar hún á vitlausum enda. Það er stórkostlega grátbroslegt að á Íslandi séum við að smíða frumvörp um takmarkanir og skömmtun miðað við í hvaða landi við búum og það segir auðvitað töluvert mikið um það hversu dýrkeypt það er að vera með stjórnvöld sem, ef þau á annað borð byrja, byrja á vitlausum enda.