raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og get tekið heils hugar undir með henni með einkunnarorð þessarar ríkisstjórnar: Ef við á annað borð byrjum þá byrjum við á öfugum enda. Varðandi þetta þá hefur ríkisstjórnin að mínu viti farið með hræðsluáróður um að hér sé yfirvofandi orkukreppa, ekki sé næg framleiðsla og það stefni hraðbyri í að heimili landsins verði án orku. Sama ríkisstjórn og er búin að stýra skútunni í fleiri ár er að segja okkur að þeirra ríkisstjórn og þeirra meðferð með vald hafi orðið þess valdandi að nú sé útlit fyrir að það verði orkuskortur í landinu. Hér erum við að ræða frumvarp þar sem stendur til að opna upp á gátt það sem hefur ekki verið opið áður, þ.e. að stórnotendur geti farið að selja aftur til baka inn á kerfið. Mér leikur forvitni á að vita hvort hv. þingmanni finnist ekki tilefni til og það sé réttara að taka þessa breytingartillögu meiri hlutans, sem kemur hér fram í 2. umræðu án þess að það mál hafi farið í gegnum umsagnarferli, bara út fyrir sviga og láta það fara í gegnum þrjár umræður og fá almennilegt samráð (Forseti hringir.) við hagsmunaaðila um hvort þetta sé rétt leið til að takast á við ástandið í dag.