154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:30]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni sumpart. Ég er á því að það þurfi meiri græna orku og það þurfi að fara í orkuöflun. En við verðum auðvitað að hafa skoðun á því hvernig farið er í það verkefni. Ég held, eins og ég nefndi hér áðan, að við séum að horfa upp á afleiðingar þess að hér hafi verið ákveðin störukeppni í gangi á milli stjórnarflokkanna og það blasi við okkur að það þurfi að fara í markvissar aðgerðir til að gera betur og tryggja orkuöryggi almennings og fyrirtækja á landinu. En varðandi vinnubrögðin þá finnst mér líka annað einkenni vera, ég veit ekki hvort ég á að nota orðið metnaðarleysi því að ég veit ekki einu sinni hvort þetta er það, en mér finnst bara blasa við að þegar svona umsögn kemur fram varðandi mjög veigamikið atriði í frumvarpinu þá eigi nefndin auðvitað að taka málið aftur til skoðunar og auðvitað eigum við að fullvissa okkur um það að frumvarpið sé að ná fram þeim markmiðum sem það segist ætla að ná. Og án þess að ég ætli að fara að rekja vinnubrögð meiri hlutans í fyrri málum þá hræða sporin.