raforkulög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna sem var prýðisgóð. Ég er ekki með dagsetninguna alveg á hreinu en fyrir nokkrum mánuðum gáfu þingflokkar Miðflokksins annars vegar og Viðreisnar hins vegar yfirlýsingu hér úr þessari pontu þar sem flokkarnir tveir lýstu yfir að þeir myndu styðja ríkisstjórnarflokkana ef þá vantaði stuðning að hluta til þess að koma áfram málum sem væru fallin til frekari orkuöflunar. Grundvöllur þess máls sem við ræðum hér núna er auðvitað orkuskortur sem hefur verið að ágerast. Nýjasta mat Landsnets leiðir út að hann verði viðvarandi og muni ágerast til ársins 2028, hvorki meira né minna, sem er u.þ.b. sá tímarammi sem ríkisstjórnin telur að þurfi til að ná fram hallalausum fjárlögum, til þess að setja þetta í samhengi við tímalínuna. En ég velti fyrir mér afstöðu hv. þingmanns til þess hver sé grunnvandinn. Hver er orsök þess að við stöndum frammi fyrir því að vera hér að setja lög núna fyrir þinglok þar sem er í raun verið að forma embætti skömmtunarstjóra rafmagns? Hvar bar okkur af leið? Eru þingflokkarnir tveir ekki enn þá á þeim stað — ég veit að Miðflokkurinn er á þeim stað og ég held að Viðreisn sé það sömuleiðis — að styðja ríkisstjórnina að koma fram með mál sem eru til gagns?