154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:34]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni kærlega fyrir andsvarið. Mér er þessi umræða hér í þingsal minnisstæð. Mér er líka minnisstætt hver viðbrögð stjórnarmeirihlutans voru þá og hafa verið síðan. Þau hafa aldrei á nokkrum tímapunkti gert sig neitt líkleg til að þiggja þetta góða boð um liðsinni. Afstaða Viðreisnar í þeim efnum er algerlega óbreytt um það að vilja liðka fyrir góðum málum þar sem hægt er að hjálpa þessari verkstola ríkisstjórn. Síðast í gær buðum við fram slíkt liðsinni varðandi frumvarp um lögreglulög. Afstaða okkar í orkumálum er algerlega óbreytt.

Hv. þingmaður spyr um hver rót vandans sé. Rót vandans í mínum huga er ríkisstjórnin. Þetta er afleiðing af algeru og fullkomnu stefnuleysi. Hún stendur ráðþrota frammi fyrir ákveðnum afleiðingum þess að geta ekki tekið ákvarðanir. Ég er þingmanninum sammála um að það er orkuskortur og það þarf að afla nýrrar orku. Það er, eins og ég nefndi hér í andsvari við hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, auðvitað grátbroslegt til þess að hugsa að á Íslandi séum við í þeirri stöðu núna að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin er að leggja til á þessu sviði lúta að skömmtunum.