154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:36]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og það er, eins og hv. þingmaður segir, auðvitað kátbroslegt að við séum í þeirri stöðu á Íslandi að orkuskortur blasi við þegar við búum í því landi þar sem gnægð orkukosta er sennilega sú mesta á byggðu bóli. En ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki hugsað í langan tíma, allt of langan í raun, um þögn ríkisstjórnarflokkanna gagnvart boði þessara tveggja flokka um stuðning við góð mál sem væru til gagns hvað frekari orkuöflun varðar. Hefur hv. þingmaður einhverjar kenningar um það hvað veldur? Ég ætla að leyfa mér að kasta fram einni: Það er ótti tveggja flokka af þremur í stjórn við það að ef bátnum er ruggað þá hafi það meiri afleiðingar heldur en að leysa orkuvandann; það ruggi ríkisstjórninni fyrir borð. Eru einhverjar aðrar líklegar ástæður heldur en hræðslan við sjálfa sig sem hrekur stjórnarflokkana frá því að þekkjast þetta góða boð flokkanna tveggja?