154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:37]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eru einhverjar aðrar skýringar líklegar? Svar mitt er: Nei, það eru engar aðrar skýringar sérstaklega líklegar eða sennilegar. Það er ótti ríkisstjórnarinnar við sig sjálfa, ógnin er ævinlega innan ríkisstjórnarinnar en ekki fyrir utan. Það held ég að sé afleiðing þess að meðvirki makinn getur ekki þegið aðstoðina af því að það mun hafa alvarlegri afleiðingar að hann telur en að stíga einhver skref. Ég vil bara aftur ítreka hvað það er ótrúlega dapurlegt til þess að hugsa að þetta sé staðan. Ég hef m.a. setið, þegar ég leiði hugann að því, í viðtölum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins þar sem þeir tala gjarnan með þeim hætti að þeir séu einir á þessum vagni og þeir séu einir um að draga vagninn og kannski með liðsinni Framsóknarflokksins. En auðvitað er sláandi til þess að hugsa að hér hefur komið fram formlegt tilboð og það hefur engu breytt. Það segir allt sem segja þarf um raunverulegan vilja í þessum efnum.