raforkulög.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum sem er nú frumvarp sem er búið að fara í fleiri en einn og fleiri en tvo hringi hér á þessu þingi þar sem meiri hlutinn virðist ekki alveg geta ákveðið sig hvernig hann ætli að taka á krísu sem hann ber sjálfur ábyrgð á. En gott og vel, látum það liggja á milli hluta.
Hér erum við að ræða stöðu sem þýðir í raun að meiri hlutinn hefur brugðist heimilum landsins. Það er í raun með miklum ólíkindum að við séum að setja lög um hvernig eigi að skammta raforku á heimili landsins á landi eins og Íslandi. Auðvitað er mikilvægt að það liggi fyrir að heimili landsins eigi að hafa forgang ef skammta þarf raforku en eins og ég kom inn á í andsvari við hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur hér rétt áðan þá er byrjað á vitlausum enda. Á okkur hefur legið kvöð, mjög skýr kvöð, um að leiða hér í lög skilgreiningu á því hvað telst viðráðanlegt verð fyrir raforku til heimila og einstaklinga og tryggja þessum heimilum og einstaklingum aðgang að raforku á viðráðanlegu verði. Þetta höfum við ekki gert. Enn er ekki komið neitt regluverk um eitthvert hámarksverð eða hversu langt megi ganga í að rukka okkur fyrir aðgang að rafmagni sem við vitum að er framleitt í nægu magni til að tíu Íslönd gætu verið hérna til viðbótar, þá meina ég bara með fólkinu sjálfu, heimilum landsins, ef við tökum alla stórnotendur út fyrir sviga og stærri fyrirtæki.
Af hverju er ekki búið að tryggja að heimili landsins verði ekki fyrir orkuskorti? Af hverju er ekki búið að tryggja að við eigum rétt á aðgengi að raforku á viðráðanlegu verði, eins og orkupakkar Evrópusambandsins segja fyrir um? Hvers vegna erum við hér að setja lög um að það megi setja reglugerð um forgangsröðun á raforku sem þarf að skammta? Vegna þess að það er ekki enn þá búið að setja skýran ramma utan um neitt af þessu og það kemur skýrt og skilmerkilega fram í nefndaráliti meiri hlutans að þau eru að bíða, þau eru enn að bíða eftir að það verði almennilegt regluverk sett saman í ráðuneytinu og á meðan við bíðum þá tökum við inn þetta skítamix hér. Það er það sem er í gangi hérna. Og ekki nóg með að þetta fjögurra greina skítamix komist loksins hingað heldur bætir meiri hlutinn úr skák og laumar inn einni breytingartillögu sem felur í sér grundvallarbreytingu á því hvernig viðskipti með raforku virka á Íslandi í dag og gerir það í raun með þeim hætti að auðvitað er ekki talað við þá aðila sem búið var að leita til til samráðs. Það er ekki búið að leita samráðs gagnvart þessari breytingu vegna þess að þetta er breytingartillaga sem kemur fram í 2. umræðu, þannig að ég vil auðvitað bara í fyrsta lagi, ef það er ekki búið að gera það nú þegar, virðulegi forseti, óska eftir því að þetta mál fari aftur inn í nefnd og að kallað verði eftir umsögnum um þessa breytingartillögu sérstaklega. Ég fer þess hér með á leit við forseta. Hvers vegna geri ég það? Jú, vegna þess að með breytingartillögu meiri hlutans er verið að leggja til að stórnotendur komist inn í þetta kerfi sem raforkulögin hafa sett upp gagnvart þeim sem mega núna selja aftur inn á raforkukerfið ef uppi er orkuskortur. Þetta þýðir t.d. að álverin geta selt Landsneti aftur umframorku.
Mig langar, virðulegi forseti, vegna þess að mér finnst ASÍ skýra þetta talsvert betur út en ég gæti a.m.k. í stuttu máli gert, að vitna í hvaða mögulegu afleiðingar þessi breytingartillaga, sem eins og ég segi var ekki hluti af frumvarpinu upphaflega, getur haft í för með sér. Í umsögn ASÍ um frumvarpið stendur, með leyfi forseta:
„Þá hefur meiri hluti atvinnuveganefndar skilað af sér nefndaráliti með breytingartillögu sem gerir stórnotendur“ — og þarna erum við að tala um álver og gagnaver og svona — „að markaðsaðilum raforku“ — þetta er nýyrði í lögunum, markaðsaðilar — „og þar með kleift að selja orku inn á kerfið til að bregðast við orkuskorti án þess að stjórnvöld þurfi að grípa inn í. Alþýðusambandið telur ástæðu að benda á að þótt breytingin virðist lítil geta áhrifin verið veruleg. Ef breytingarnar ná fram að ganga virðist ekkert koma í veg fyrir að stórnotendur raforku, þ. á m. álver, geri hlé á starfsemi sinni og framleiðslu og ákveði að selja raforkuna frekar en að nýta hana, ef það reynist þeim hagstæðara. Aðstæður sem þessar geta myndast ef eftirspurn eftir raforku er mikil, framboð af raforku er lítið“ — eins og var síðastliðið ár — „og verð á áli lækkar. Breytingar sem þessar geta grafið undan starfsöryggi launafólks stórnotenda raforku og haft ófyrirséðar afleiðingar á íslenskan vinnumarkað. Alþýðusamband Íslands gagnrýnir harðlega að stórum breytingum sem þessum sé bætt við frumvarpið á seinni stigum máls án þess að mat hafi verið framkvæmt á mögulegum áhrifum og án undangengins samráðs.
Alþýðusambandið kallar eftir því að stjórnvöld taki málið í heild sinni til endurskoðunar þar sem farið verði í heildstæðari breytingar á lagaumgjörð raforkumála þar sem áhrif breytinganna eru metin og tryggt verði að stjórnsýsla og eftirlitsstofnanir séu í stakk búnar til að hafa yfirsýn og eftirlit með raforkumarkaði.“
Ég ætla á eftir að lesa upp úr öðrum kafla úr þessari ágætu umsögn frá Alþýðusambandinu en það er akkúrat þetta sem er mergurinn málsins. Það er enn verið að bíða eftir heildstæðu regluverki til að takast á við þennan veruleika sem mætti kalla ákveðið sjálfskaparvíti núverandi stjórnvalda en það er eftir sem áður verið að setja þessi lög sem eru skítamix og eru að opna fyrir brask með raforkuöryggi landsmanna. Þau eru að opna fyrir að hægt sé að reyna að sækja sér gróða byggt á raforkuskorti í landinu og að stórnotendur raforku reyni að græða á því þegar það vantar upp á raforku í landinu. Hver tapar á því? Það er almenningur og það er ríkissjóður. Hér er meiri hlutann að leiða þetta í lög með breytingartillögu sem hefur ekki og mun ekki fara í gegnum þrjár umræður og ekki fara í gegnum viðhlítandi umsagnarferli. Þetta þykir mér mjög gagnrýnivert og gerir það að verkum að ég mun ekki með góðri samvisku geta samþykkt þetta frumvarp verði þessi breytingartillaga samþykkt. Meira að segja þótt hún verði felld mun ég eiga erfitt með að styðja það, einfaldlega vegna þess að það er svo gagnslaust eitt og sér. Við erum komin fram yfir hallann sem var óttinn við orkuskortinn sem gæti orðið, að það gæti þurft að skerða raforku, að það yrði einhvers konar neyðarástand hér út af orkuskorti. Það tímabil er liðið og við erum óhult vel fram undir haust og lengur þannig að það gefst alveg tími til að, hvað eigum við að segja, sparka aðeins duglega í rassinn á ráðuneytinu og fá til okkar þessa heildstæðu löggjöf sem er víst búin að vera í vinnslu voðalega lengi og er alveg handan við hornið og alveg að koma. Ef hún er það þá skulum við bara bíða eftir henni og fá betri og almennilegri og ítarlegri löggjöf sem inniheldur það mikilvægasta sem við þurfum að hafa í löggjöf sem þessari, sem er að tryggja heimilum landsins rétt til aðgangs að öruggri raforku á viðráðanlegu verði og á meðan við skilgreinum það ekki, á meðan við tryggjum ekki að það megi ekki braska með rafmagn á kostnað heimila landsins, þá er tómt mál að tala um að skammta raforku til landsmanna.
Þetta leiðir mig að síðari punkti úr þessari, eins og ég sagði áðan, ágætu umsögn Alþýðusambands Íslands, þar sem segir áfram, með leyfi forseta:
„Frumvarpið felur í sér breytingar sem ætlað er að tryggja almenningi og smærri fyrirtækjum forgang komi til skömmtunar vegna óviðráðanlegra atvika, til að mynda vegna framboðsskorts. Sú staðreynd að skömmtun raforku er til umræðu er til marks um að stjórnvöldum hafi mistekist að standa vörð um orkuinnviði og þar með hagsmuni almennings.
Alþýðusamband Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarpið sem felur ekki í sér heildstæða lausn á þeim vanda sem steðjar að vegna þess að stjórnvöld hafa ekki tryggt orkuöryggi fyrir heimili og smærri fyrirtæki né vernd fyrir verðhækkunum á raforku.
Ljóst er að gera þarf breytingar á raforkulögum sem eru til þess fallnar að tryggja orkuöryggi almennings og smærri fyrirtækja og verja almenning fyrir hækkunum á raforkuverði sem getur haft víðtæk áhrif á kjör heimilanna í landinu. Það frumvarp sem hér um ræðir er ekki til þess fallið að ná þessum markmiðum heldur ber það einkenni illa ígrundaðs bútasaums sem keyra á í gegn í miklum flýti.“
Þetta er nú nákvæmlega inntak okkar gagnrýni, virðulegi forseti. Hér á að keyra í gegn með miklum flýti bútasaum sem verndar ekki heimili landsins gagnvart því að braskarar reyni að græða á þeirra kostnað og að aðgangur heimilanna að grundvallarþörf, sem er að fá rafmagn, verði notaður sem einhvers konar skiptimynt til að græða peninga.
Virðulegi forseti. Ég kom inn á það í andsvari við hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur hér áðan að aðgengi að öruggri raforku er grundvallarréttindamál í nútímasamfélagi. Það er einfaldlega þannig. Ég hugsa til þess með hryllingi að það hafi verið heitavatnslaust og rafmagnslaust í lengri tíma á Íslandi í aðstæðum sem hefði vel mátt koma í veg fyrir ef stjórnvöld hefðu sýnt þessum grundvallarinnviðum, og þá meina ég auðvitað ríkisstjórnin, viðhlítandi virðingu og viðhald. En það er ekki svo. — Afsakið forseti. Ég missti aðeins þráðinn vegna þess að það er verið að spila myndband í hliðarsal, en þessi grundvallarréttindi borgaranna, það var það sem ég var að ræða um við hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur hér áðan í andsvari. Við höfum auðvitað séð það mjög skýrt í þeim átökum, þeim hræðilegu stríðum sem geisa nú víðs vegar um heiminn, að þegar ráðist er á raforkuinnviði er ráðist á þjóðaröryggi og getu þjóðar til að draga fram lífið í sjálfu sér. Það er verið að ráðast á innviði almennra borgara sem verða að hafa rafmagn til að geta lifað lífinu með mannvirðingu og reisn.
Nú er það svo að við erum að setja hér lög um skömmtun til heimila og mér finnst, eins og ég sagði áðan, virðulegi forseti, við vera að byrja á röngum enda. Við eigum að vera að skilgreina réttindi heimilanna til aðgangs að öruggri raforku. Heimili landsins nota ekki nema 5%, heimilin og smærri fyrirtæki nota ekki nema 5% af allri raforku sem er framleidd á Íslandi þannig að mér finnst bara tómt mál að tala um að heimilin eigi að njóta einhvers forgangs þegar kemur að skerðingu. Það á bara ekki að þurfa að skerða heimili landsins þegar 95% af raforku landsins fara í eitthvað annað en heimilin. Þannig að ég skil ekki alveg þessa nálgun, virðulegi forseti.
Svo við komum aftur að þessari breytingartillögu, virðulegi forseti, það er vont að taka mál sem þetta og bæta við grundvallarbreytingu á efni frumvarpsins á síðari stigum vegna þess að það gerir samráðsaðilum ekki kleift að bregðast við og gefa sitt álit á þeirri breytingu. Þetta mál, þessi breytingartillaga er einfaldlega þess eðlis að hún á skilið að fara í gegnum þrjár umræður, ekki tvær, ekki hálfa, eina og hálfa, heldur þrjár. Auðvitað er það svo að þegar þetta veigamikil breyting kemur fram í 2. umræðu þá er rétt að málið fari aftur inn í nefnd, að nefndin skoði gaumgæfilega hvort ekki sé rétt að bíða með þessa breytingartillögu þangað til næst, sem ég vona að verði niðurstaðan, eða nefndin sýni þá lágmarksvirðingu og -viðleitni gagnvart sínu löggjafarhlutverki að kalla til umsagnaraðila og fái þeirra álit á þessu, eins og t.d. ASÍ sem hefur nú lýst sinni andstöðu við þetta mjög skýrlega, en einnig aðra sem hafa hagsmuni almennings í huga þegar þeir skila inn umsögnum, og óska eftir áliti þeirra á þessari breytingartillögu. Og það kann að vera að með þeim gestakomum kunni nefndarmönnum að snúast hugur og að þeir ákveði að hverfa frá þeirri braut sem þeir virðast vera að feta með þessari breytingartillögu og láti hana eiga sig í bili. Þetta er auðvitað bara mín einlæga ósk. Ég þekki hvernig hlutirnir virka hér í þessum sal og það er oftar en ekki lítið hlustað á umsagnaraðila né stjórnarandstöðuþingmenn sem koma með athugasemdir. En hver veit nema hagsmunir almennings fái einu sinni að vinna og ráða för í máli sem þessu. Að þessu sögðu fer ég þess auðvitað á leit við atvinnuveganefnd að hún geri þetta, að hún kalli til gesti, að hún fari vandlega yfir þessa breytingartillögu eins og um í raun fyrstu umferð á umfjöllun um málið væri að ræða gagnvart þessari einu grein, og mér finnst bara töluvert mikilvægt að hún geri það.
Að lokum, virðulegi forseti, því að ég sé að tími minn er brátt búinn, vildi ég tala aðeins um orkuskort og meintan orkuskort. Ég hef klórað mér töluvert í kollinum yfir því að hér hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra gengið um götur og torg og hrópað orkukrísa, orkuskortur, að það sé allt á leiðinni norður og niður, það sé ekki nógu mikið af orku til í landinu, að við verðum að virkja hér hverja einustu lækjarsprænu til þess að allir geti keyrt hér um á Teslu og það verði alveg örugglega ekki orkuskortur, og hefur talað um orkukreppu og alls konar sem ég hef kallað hræðsluáróður. Ástæðan fyrir að ég kalla þetta hræðsluáróður er að ég reyndi eftir fremsta megni að skoða þessar fullyrðingar ráðherrans um að hér væri eitthvert gríðarlegt neyðarástand, við myndum ekki framleiða nógu mikið af orku, og þetta er raunar það stór umræða að ég þarf mögulega að koma upp í aðra ræðu, virðulegi forseti.
Þessi umræða um endalausan orkuskort felur í sér tvennt: Annars vegar þá staðhæfingu að við þurfum svona mikla orku 10–20 ár fram í tímann miðað við einhverja ákveðna þætti sem stjórnvöld eru búin að ímynda sér að verði til staðar, þ.e. miðað við línulega fjölgun á rafbílum, miðað við línulega fjölgun á stórnotendum raforku, miðað við línulega fjölgun á fólki og í raun ekki með hugann við það hvort við gætum kannski breytt samfélaginu þannig að við þurfum ekki að vera með mestu orkunotkun per íbúa í öllum heiminum. Þurfum við endilega að halda áfram í línulegum vexti þangað? Er það virkilega orkukrísa að við getum ekki bara haldið áfram að vaxa endalaust svona upp á við? Það er ekkert náttúrulögmál sem segir: Heyrðu, við þurfum, hvað eigum við að segja, að viðhalda öllum þessum álverum, við fáum örugglega 50 stórnotendur af raforku í viðbót sem grafa hérna eftir rafmynt og eru með gagnaver og eru með landeldi og hitt og þetta sem þarfnast fullt af raforku og þess vegna þurfum við að framleiða alveg ótrúlega mikið af raforku. Ef við ætlum að eiga öll hérna einn rafbíl a.m.k., eða þrjá rafbíla á heimili eins og er á mörgum heimilum, þrír bílar á heimili jafnvel, þá þurfum við svona mikið af orku og við erum bara engan veginn nálægt því að geta framleitt svona mikið af orku. Ég segi bara: Hér erum við bara með einhverjar forsendur sem við þurfum að skoða. Eru þetta óhreyfanlegar, óhagganlegar forsendur? Vegna þess að ég held að þessar stofnanir sem eru að leggja mat á orkuþörf til framtíðar séu ekkert rosalega mikið að skoða hvort það sé hægt að breyta einhverjum breytum hérna, þær skoða bara hvert stjórnvöld eru að stefna og hvað við þurfum mikla orku til þess. En eigum við ekki aðeins að staldra við og spyrja okkur hvert stjórnvöld stefna með okkur ef við ætlum bara að háma í okkur endalaust raforku, upp, upp, upp endalaust alveg út í hið óendanlega? Einhvern tímann eigum við augljóslega ekki nóg eftir til þess.
Hinn þátturinn sem ég sé að ég næ bara ekki almennilega að koma að er auðvitað þessi þáttur aðila á markaði, þ.e. að þeir sem geta framleitt og selt raforku á markaði eiga kannski til að lofa svolítið upp í ermina á sér hvað þeir geta selt mikið af raforku og koma svo jafnvel með betlistafinn til Landsvirkjunar og vilja fá afgangsraforkuna, og ef hún er ekki til, af því að það er ekki alveg nógu mikið af raforku til akkúrat þessa stundina, þá er farið að hrópa orkuskortur, orkuskortur. En mögulega var ekki verið að höndla mjög vel með þær heimildir og þá getu sem viðkomandi fyrirtæki hafði.
En ég sé að tími minn er búinn, virðulegi forseti, þannig að ég verð að setja mig í aðra ræðu til að fara betur yfir þessa þætti málsins og vona enn og aftur að hv. atvinnuveganefnd taki þessa vondu breytingu út úr lögunum.
(Forseti (AIJ): Forseti getur upplýst að þegar hafði verið beðið um að málið gengi til nefndar milli 2. og 3. umræðu en hv. þingmaður kom því skilmerkilega til skila og það hefur verið undirstrikað.)