svör ráðherra við fyrirspurnum.
Herra forseti. Ég ætla ekki að kvarta undan því þegar stjórnarflokkarnir þvælast hver fyrir öðrum, öðru nær þegar ríkisstjórnin er jafn illa samsett og sú sem nú situr að völdum. Við verðum hins vegar að átta okkur á því að fólk víða um land er að bíða niðurstaðna í mörgum málum sem þetta þing hefur til afgreiðslu. Mig langar sérstaklega að nefna samgönguáætlun. Samgönguáætlun átti að klárast fyrir ári. Síðasta vor átti að klára samgönguáætlun en hún var eitt af þeim málum sem fóru í tætarann hjá stjórnarflokkunum þá. Það var mælt fyrir henni aftur í nóvember og nú er kominn júní og enn er umhverfis- og samgöngunefnd að taka inn gesti í þessu máli vegna þess að stjórnarmeirihlutinn getur ekki náð saman um það hvernig eigi að forgangsraða í uppbyggingu samgönguinnviða landsins næstu árin. Við erum ítrekað að fá ákall frá ýmsum sveitarfélögum úti um landið þar sem við erum beðin um að greiða þessu máli leið í gegnum þingið. Við það fólk vil ég segja: Sendið þennan póst bara á stjórnarflokkana. Það hefur aldrei strandað á neinu öðru en Vinstri grænum, Framsókn og Sjálfstæðisflokknum (Forseti hringir.) að klára samgönguáætlun þessa vetrar og síðasta vetrar. Þetta er bara eitt af fjölmörgum málum sem skipta máli fyrir uppbyggingu í landinu sem stjórnarflokkarnir sitja á (Forseti hringir.) í einhverju fýlukasti og eru að drepa.