154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

svör ráðherra við fyrirspurnum.

[15:09]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég sendi skriflega fyrirspurn til hæstv. dómsmálaráðherra varðandi eftirlit með framkvæmd ákæruvalds. Þetta var 12. febrúar síðastliðinn og núna er kominn 11. júní og ég er ekki enn þá búinn að fá svar. Hvernig stendur á þessu? Ég skora á virðulegan forseta að ganga eftir því að mér verði svarað.

Nú er það þannig í forsetaúrskurði að á ábyrgðarsviði dómsmálaráðherra er ákæruvaldið og í 1. mgr. 19. gr. er skýrt kveðið á um það að ráðherrann hafi eftirlit með framkvæmd ákæruvalds og geti krafist þess að ríkissaksóknari láti í té greinargerð um meðferð einstakra mála. Í ljósi fyrri svara frá ráðuneytinu virðast þeir ekki getað lesið þetta ákvæði sér til gagns, samkvæmt orðanna hljóðan. Þeir virðast líta á þetta mjög sérstökum augum og hafa meira að segja sagt að þeir líti þannig á að þeir hafi ekki almenna heimild (Forseti hringir.) til að óska eftir gögnum. Ég bara krefst þess (Forseti hringir.) að virðulegur forseti gangi eftir því að ég fái svar við þessari mjög svo einföldu fyrirspurn.