154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

svör ráðherra við fyrirspurnum.

[15:11]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Alþingi hefur sannarlega það hlutverk að setja lög í landinu. En Alþingi hefur einnig annað mjög mikilvægt hlutverk og það er að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu og því hvernig lögum er fylgt og hvort. Þá hefur Alþingi líka mikla þörf fyrir upplýsingar frá framkvæmdarvaldinu til að geta sinnt sínu löggjafarhlutverki. Og vegna þessa mikilvæga hlutverks, vegna hlutverks Alþingis í okkar stjórnskipun, þá ber ráðherrum að svara fyrirspurnum þingmanna innan 15 daga þegar þingmenn bera upp fyrirspurnir um framkvæmd laga eða fyrirkomulag í stjórnsýslunni. Sjálf er ég með a.m.k. þrjár fyrirspurnir sem eru komnar langt fram yfir þann tíma. Ég held að það séu komnir tveir mánuðir. Nú eru bara örfáir dagar eftir af þessu þingi og ég spyr mig hvort ástæðan fyrir því að þessum fyrirspurnum er ekki svarað (Forseti hringir.) sé sú að stjórnsýslan sé ekki meðvituð um þetta mikilvæga hlutverk Alþingis og skyldu sína til að (Forseti hringir.) afhenda þinginu þessar upplýsingar eða hvort hún sé einhver önnur.