154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

svör ráðherra við fyrirspurnum.

[15:13]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á því að ég er með aðra fyrirspurn um atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs sem ég hef ekki enn þá fengið svarað. Það er fyrirspurn frá 15. apríl síðastliðnum og ég er enn að bíða eftir svari. Mér finnst alger óhæfa að ráðuneytið — þetta er fyrirspurn til hæstv. innviðaráðherra — fari ekki að þingskapalögum um svör við skriflegum fyrirspurnum. Það þarf að ganga á eftir þessu, eins og hér í pontu, aftur og aftur. Þetta eru ekki flóknar fyrirspurnir og ef það eru heilindi í stjórnkerfinu um að svara þessu þá á bara að ganga í verkið. Ég skora á virðulegan forseta þingsins að krefjast þess að mér sem þingmanni og öðrum þingmönnum verði svarað innan þess frests sem lög kveða á um. Ráðherrar geta ekki verið að brjóta þingskapalög eins og enginn sé morgundagurinn þegar við erum að koma með þessar fyrirspurnir. Núna er þingstörfum að fara að ljúka og við fáum svörin sennilega ekki fyrr en eftir þinglok þannig að við getum ekki notað þau í vinnu okkar í þinginu.