154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

svör ráðherra við fyrirspurnum.

[15:14]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Forseti. Mig langar akkúrat að tala um fundarstjórn forseta. Það er nefnilega þannig að í dag er aðeins öðruvísi dagskrá heldur en við kannski öll bjuggumst við. Við bjuggumst öll við því að við myndum halda áfram að tala um raforkulög strax núna í dag sem við vorum komin langt á leið með. En í þeirri umræðu kom fram fullt af ágætisathugasemdum, sérstaklega að hægt sé að selja orku til baka frá stórnotendum. Ég verð bara að segja að ég vil hrósa bæði hv. formanni atvinnuveganefndar og forseta fyrir að taka málið af dagskrá vegna þess að á morgun munu koma gestir í atvinnuveganefnd til að ræða hvort sá ákveðni hlutur kannski gangi of langt. Mér finnst það bara athyglisvert og gott og þess virði að nefna að það sé verið að hlusta á það hérna þegar það koma alvarlegar athugasemdir og þær séu teknar fyrir. Þannig að þetta er góð fundarstjórn forseta.