svör ráðherra við fyrirspurnum.
Herra forseti. Við þekkjum það nú allt of vel hversu frjálslegt samband ráðherra er við dagatalið. Það virtist t.d. koma þáverandi fjármálaráðherra á óvart hvenær páskana bar upp þetta árið og þess vegna varð viðkomandi ráðherra að fá undanþágur frá lögum um opinber fjármál varðandi framlagningu fjármálaáætlunar, sem er núna loksins mögulega að komast til síðari umræðu í lok þessarar viku, síðustu þingfundaviku starfsáætlunar. En ég ætlaði ekki að lengja þessa umræðu heldur má ég bara til, fyrst fólk er að nefna hér tímafresti sem ráðherrar standast ekki, að nefna hér aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem enn hefur ekki verið uppfærð. Gildandi áætlun er frá árinu 2020 og þegar við höfum gengið á ráðherrann og spurt hvers vegna hann sé ekki búinn að uppfæra þetta grundvallarplagg þá segir hann að það sé allt í lagi, ný ríkisstjórn þurfi ekkert endilega að gera þetta strax eftir kosningar, hún hafi samkvæmt lögum fjögur ár til að uppfæra áætlunina. Sá fjögurra ára frestur (Forseti hringir.) rennur út eftir viku. Ég ætla að leyfa mér að efast um (Forseti hringir.) að hæstv. ráðherra muni skila einhverju botnlaust frábæru plaggi fyrir þann tíma. Alla vega hefur hann ekki (Forseti hringir.) enn þá átt neitt samráð við almenning eða náttúruverndarsamtök til að undirbyggja það plagg. (Forseti hringir.) Hann hefur átt einhver samtöl við atvinnulífið en fjögur ár eru ansi langur tími (Forseti hringir.) kyrrstöðu í því hvaða aðgerðir á að taka.