kynning á uppfærslu samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Herra forseti. Nú hefur um alllangt skeið staðið yfir endurskoðun svokallaðs samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þessi vinna hófst eftir að þáverandi fjármálaráðherra og núverandi hæstv. forsætisráðherra gerði athugasemdir við að kostnaður við borgarlínu væri þegar kominn algjörlega úr böndunum, eins og menn svo sem gátu séð fyrir, og það þrátt fyrir að framkvæmdir væru varla hafnar og enn veit enginn hvað þetta mun kosta í heildina eða hver muni bera rekstrarkostnaðinn. En viðbrögðin, ekki hvað síst frá því nýja ríki í ríkinu sem á að halda utan um þessar framkvæmdir, voru þau að það væri kannski allt í lagi að uppfæra samgöngusáttmálann. Þau gáfu lítið fyrir athugasemdir þáverandi fjármálaráðherra en fannst alveg sjálfsagt að uppfæra sáttmálann með því að setja meiri pening í hann.
En nú spyr ég hæstv. innviðaráðherra hvort það sé ekki alveg á hreinu að þegar niðurstaðan liggur fyrir þá verði hún kynnt hér í þinginu og rædd á Alþingi, því að ítrekað var því lofað þegar verið var að reyna að koma þessum sáttmála hér í gegnum þingið að menn þyrftu engar áhyggjur að hafa vegna þess að þetta yrði jafnt og þétt tekið fyrir í þinginu og það kæmi að málinu á öllum stigum þegar einhverjar breytingar yrðu. Spurning mín er einfaldlega þessi: Er ekki alveg á hreinu að hæstv. ráðherra mun standa við þau fyrirheit að þingið fái að koma að þessu og kynna þetta og ræða hér á Alþingi þegar niðurstaða liggur fyrir?