kynning á uppfærslu samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins .
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er rétt að samgöngusáttmálinn er eitt af almikilvægustu viðfangsefnum stjórnmálanna í samtímanum og ekki bara vegna þess hversu mikilvægt það er í framtíðarsýn fyrir samgöngur heldur bara fyrir uppbyggingu og þróun þéttbýlis hér á höfuðborgarsvæðinu og þar með í raun og veru þeirrar framtíðarsýnar sem við erum að vinna með hér. Ég legg gríðarlega mikla áherslu á þetta mál. Hv. þingmaður veltir sérstaklega upp því að hér er verið að vinna að uppfærslu sáttmálans. Það töldu allir aðilar við borðið að væri mikilvægt að gera og sú vinna er í raun og veru á lokametrunum. Við gerum ráð fyrir að vinnu við þessa endurskoðun verði lokið fyrir sumarið og ég legg áherslu á að það gerist. Kostnaðarskiptingin er hluti af endurskoðuninni og þá er litið bæði til beinna framlaga ríkis og sveitarfélaga og framlaga af þróun Keldnalands. Almenningssamgöngur og stuðningur ríkisins við þær er líka partur af þessari heildarsýn auk sameiginlegrar sýnar á stjórnfyrirkomulag verkefnisins. Þetta er náttúrlega verkefni af þeirri stærðargráðu að það er mjög mikilvægt að allir komi með skýrum hætti að því, bæði sveitarfélögin hér á höfuðborgarsvæðinu og innviðaráðuneytið, fjármálaráðuneyti og forsætisráðuneyti. Það hefur verið gert ráð fyrir því að uppfærður sáttmáli sé kynntur fyrir umhverfis- og samgöngunefnd og ég tel það algerlega sjálfsagt mál.