kynning á uppfærslu samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins .
Herra forseti. Það ætti nú að vera sjálfgefið að sáttmálinn verði kynntur fyrir umhverfis- og samgöngunefnd. En í samræmi við fyrirheit m.a. fyrrverandi fjármálaráðherra og fyrrverandi samgönguráðherra þá finnst mér að það hljóti að teljast eðlilegt og raunar nauðsynlegt að standa við þau fyrirheit með því að taka málið til umræðu á Alþingi í þingsal með því að hæstv. ráðherra kynni þinginu niðurstöðuna og ræði hana og spyr hæstv. ráðherra hvort það standi ekki til.
Ég spyr einnig spurningar sem ég hef reynt að spyrja áður og ekki fengið svör við, en ég held áfram að reyna: Hver mun bera rekstrarkostnað borgarlínu?