kynning á uppfærslu samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins .
Virðulegi forseti. Ég og hv. þingmaður deilum sérstökum áhuga á skipulagsmálum og okkar leiðir hafa legið saman lengur heldur en þingheimi er ljóst í daglegum störfum í því að hafa áhuga á þróun skipulagsmála og sérstaklega hér í borginni og á höfuðborgarsvæðinu, þannig að ég fagna þeim áhuga sem kemur frá þingmanninum. En það sem þingmaðurinn er sérstaklega að velta fyrir sér er varðandi aðkomu að rekstrarhlið almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. borgarlínu, og þá eru öflugar almenningssamgöngur auðvitað lykilþáttur í því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Það hlýtur að vera þannig að það að draga úr umferðartöfum fyrir okkur öll og þar með þau sem nota frekar einkabílinn sé verðugt markmið fyrir okkur öll og það er gert ráð fyrir því að aðkoma ríkisins að slíkum rekstri sé hluti af uppfærðum sáttmálann.