útgáfa læknisvottorða.
Virðulegur forseti. Umræðan undanfarna daga um vottorð hefur farið um víðan völl. Bæði höfum við heyrt í atvinnurekendum sem kvarta undan löngum veikindavottorðum starfsfólks og fyrirkomulagi um veitingu þeirra en einnig í læknum sem kvarta undan miklu álagi við vottorðaskrif sem er mikil sóun á tíma verðmætra sérfræðinga. Ljóst er að þetta mál þarfnast verðugrar umræðu til að leysa þennan hnút sem er til kominn í skrifræðiskerfinu okkar. Heimilislæknar boðuðu í apríl síðastliðnum einhliða aðgerðir ef skriffinnskan verður ekki afnumin þar sem stór hluti vinnudags þeirra fari í pappírsvinnu sem valdi löngum biðtíma eftir lækni. Enn fremur, í ljósi alvarleika málsins, talar rúmlega helmingur heimilislækna um að vera með merki kulnunar í starfi. Frá 2018 eða undanfarin sex ár hefur heilbrigðisstarfsfólk heilsugæslustöðva, bara á höfuðborgarsvæðinu, gefið út rúmlega 500.000 vottorð og langflest þeirra eru vegna veikinda til skemmri tíma að kröfu atvinnurekanda og vegna heilsufars nemenda til skóla. Búið er að gefa út að tilvísanir til barnalækna verði lagðar niður að hluta til þann 1. júní og fundur varðandi framhaldið verður ákveðinn í september.
Við erum allt of svifasein í þessu þunga skrifræðisumhverfi og verðum að snúa þessum málum við. Það að taka eina tegund tilvísana út að hluta til og endurmeta þremur mánuðum síðar — getum við ekki lagað bilaða hluti fyrr? Ég spyr því hæstv. heilbrigðisráðherra: Er einhver varanleg heildræn lausn í sjónmáli með breyttu fyrirkomulagi vegna vottorðafjalls lækna og þá hvernig og hvenær má vænta þeirra lausna?