útgáfa læknisvottorða .
Hæstv. forseti. Ég ítreka þakkir til hv. þingmanns og það er rétt að það skiptir mjög miklu máli fyrir sjúklingana að við nýtum mannauðinn, að við nýtum fjármagnið, að við nýtum allt sem best þannig að þjónustan verði eins góð og öflug og best verður á kosið. Við höfum utan við tilvísunarkerfið sem ég kom inn á hér áðan og önnur vottorð verið að horfa inn í fjölmarga aðra þætti, til að mynda endurnýjun lyfjaskírteina, hjálpartækjabeiðna, veikindavottorða vegna styttri veikinda og þannig erum við að takast á við fjölmarga aðra þætti vegna greiðsluflokka, sjúkradagpeninga, hjálpartækja og ég gæti lengi talið hér. Ég held að við getum náð verulegum árangri í þessu ef við höldum áfram að vinna þetta. En það er rétt (Forseti hringir.) sem hv. þingmaður segir og rétt að ítreka hér að öll þau samskipti sem hafa komið til viðbótar núna (Forseti hringir.) í gegnum Heilsuveru á síðustu sjö árum hafa aukið aðgengi að heilbrigðiskerfinu um þriðjung.