154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

úrræði í heilbrigðiskerfinu.

[15:32]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég varð heldur svartsýnni á gagnsemi fyrirspurnar minnar í ljósi umræðu um fundarstjórn forseta hér áðan. En kona ein hafði samband við mig og hún á, eins og margir aðrir, um sárt að binda; kvalafullir líkamlegir annmarkar vegna læknisaðgerðar. Konan missti heilsu sína og þurfti að fara í aðra stóra aðgerð vegna eftirkasta eftir þá fyrstu. Heilsa hennar fer versnandi. Hún er aftur óvinnufær vegna langvarandi verkja yfir kvið og bak. Ættingjar aka henni reglulega á bráðamóttöku. Þar er henni gefið morfín og hún svo send heim. Hún nærist lítið, grætur mikið og hefur misst alla lífslöngun — en svo versnar það. Slæmu fréttirnar eru að þessi kona er þrátt fyrir allt þetta nánast alveg hunsuð af íslenska heilbrigðiskerfinu. Það er lítið gert úr kvörtunum hennar og hún er send heim aftur og aftur. Hún fær vissulega verkjastillingu á bráðamóttöku en engin önnur úrræði eru í boði, nema jú, henni er boðið viðtal við geðlækni, ekki segulómskoðun eða speglun með tilliti til misheppnaðrar aðgerðar og hratt versnandi heilsu í kjölfarið. Þegar gefa tók á bátinn eftir fyrstu aðgerðina flæktist konan stofnana á milli í heilbrigðiskerfinu uns hún var nær dauða en lífi. Heilbrigð manneskja er í líkamsstuðli 50 en þarf að vera 25 til að þola holskurðsðgerð. Hennar stuðull mældist 4 þegar kerfið loksins rumskaði. Konan var því nær dauða en lífi og þurfti að liggja inni í þrjár vikur til að hægt væri að gera á henni aðra aðgerð sem bjargaði lífi hennar. Ég neita að trúa að ástæðan sé sú að hún er kona og öryrki. Við eigum að vera löngu komin lengra en svo. Hver er skýring hæstv. heilbrigðisráðherra á svo vítaverðu og augljósu gáleysi og skeytingarleysi heilbrigðiskerfisins í jafn alvarlegu máli sem þessu?